Hoppa yfir valmynd
2. júlí 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Samningur undirritaður við Háskóla Íslands

Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra og Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, hafa skrifað undir samning um kennslu og rannsóknir við skólann til næstu fimm ára.
Samningur við HÍ
Samningur við HÍ

Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra og Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, skrifuðu mánudaginn 2. júlí 2012 undir nýjan samning um kennslu og rannsóknir við skólann til næstu fimm ára. Nýir samningar við allt háskólastigið hafa verið undirbúnir í mennta- og menningarmálaráðuneytinu í nánu samstarfi við háskólana. Þegar hafa verið undirritaðir samningar við Háskólann í Reykjavík, Háskólann á Bifröst og Listaháskólann. Samningurinn við Háskóla Íslands er sá fjórði í röðinni og sá fyrsti við opinberu háskólana.

Sú nýbreytni er nú höfð að leiðarljósi við gerð samninga fyrir háskólastigið að hverjum samningi fylgir viðauki, þar sem starfsemi skólanna er skilgreind nánar. Viðaukinn er afrakstur náins samstarfs ráðuneytis og skólanna. Skilgreindir hafa verið ákveðnir samstarfsferlar á milli viðkomandi skóla og ráðuneytis og verður viðaukinn til endurskoðunar ár hvert. Við samninginn við Háskóla Íslands er að auki sérstakur viðauki um Aldarafmælissjóð HÍ.

Markmiðið með hinu nýja samningaferli er að auka gagnsæi og eftirlit með rekstri skólanna ásamt því að regluleg endurskoðun viðauka samningsins gerir skólanum og ráðuneyti kleift að bregðast jafnóðum við þjóðfélagsbreytingum og sníða rekstur skólanna og háskólastigins í landinu að þörfum þjóðfélagsins á hverjum tíma.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum