Hoppa yfir valmynd
24. september 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Evrópski tungumáladagurinn 26. september

Hvatt er til þess að skólar, fræðslustofnanir og aðrir taki þátt í deginum.


Evrópski tungumáladagurinn er 26. september ár hvert. Haldið hefur verið upp á hann frá árinu 2001 í samstarfi við Evrópuráðið og Evrópusambandið og hann er haldinn hátíðlegur í fjölmörgum ríkjum í Evrópu. Tungumál, tækni og tækifæri er yfirskrift dagsins að þessu sinni. Að venju mun Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur standa fyrir viðburðum í tilefni dagsins og er ætlunin að beina sjónum að því hvernig nýta megi samfélagsmiðla og upplýsingatækni í þágu tungumálanáms. Ráðgert er að hleypa af stokkunum átaki til að upplýsa ungt fólk um gildi tungumálakunnáttu og með þeim hætti hvetja það til tungumálanáms. Einnig verður efnt til dagskrár í samvinnu við mennta- og menningarmálaráðuneyti, Máltæknisetur og samtök tungumálakennara um upplýsingatækni og tungumálanám, m.a. um rafræn hjálpargögn.
  • Dagskrá er hér að neðan og einnig eru upplýsingar um daginn á heimasíðu stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur http://www.vigdis.hi.is/

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum