Hoppa yfir valmynd
12. október 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir úr Æskulýðssjóði

Mennta og menningarmálamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Æskulýðssjóði sem starfar samkvæmt lögum nr. 70/2007 og reglum nr. 60/2008.

Mennta og menningarmálamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Æskulýðssjóði sem starfar samkvæmt lögum nr. 70/2007 og reglum nr. 60/2008.

Hlutverk Æskulýðssjóðs er að styrkja eftirtalin verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka:

  1. Sérstök verkefni sem unnin eru fyrir börn og ungmenni og/eða með virkri þátttöku þeirra.
  2. Þjálfun forystufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða.
  3. Nýjungar og  þróunarverkefni.
  4. Samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka.

Við úthlutun úr Æskulýðssjóði fyrir árið 2012 verður lögð áhersla á umsóknir frá æskulýðsfélögum og æskulýðssamtökum um verkefni er vinna gegn einelti, fræðslu um mannréttindi, þjálfun þeirra er vinna með börnum og ungmennum í félagsstarfi og á samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka.
    
Hvorki er heimilt að styrkja árvissa né fasta viðburði í félagsstarfi svo sem þing, mót eða þess háttar viðburði né ferðir hópa.
    
Mennta- og menningarmálaráðherra úthlutar styrkjum úr Æskulýðssjóði að fengnum tillögum stjórnar Æskulýðssjóðs.
    
Umsóknarfrestur í Æskulýðssjóð er fjórum sinnum á ári, 1. febrúar, 1. apríl, 1. september og  1. nóvember og er umsóknarfrestur auglýstur hverju sinni.
    

Í umsókn til Æskulýðssjóðs skulu koma fram upplýsingar um:
 

  •   nafn æskulýðsfélags eða æskulýðssamtaka
  •    nafn og heimilisfang umsækjanda
  •    heiti, lýsing og markmið verkefnis, ásamt kostnaðar- og tímaáætlun
  •    áætlaðan fjölda þátttakenda
  •    samstarfsaðila eftir því sem við á
  •    kennitölu og númer bankareiknings þess er styrkurinn á að leggjast inn á ef viðkomandi hefur fengið úthlutað styrk.

    

Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um
á rafrænu formi á umsóknavef Stjórnarráðsins

  • Aðgangur er veittur á kennitölu umsækjenda og verður lykilorð sent viðkomandi á netfang sem hann gefur upp við nýskráningu.
  • Lykilorðinu má breyta eftir innskráningu með því að opna Mínar stillingar.
  • Umsækjendur skrá sig inn með kennitölu og lykilorði og velja mennta- og menningarmálaráðuneyti  undir flipanum Umsóknir.

Frekari upplýsingar um Æskulýðssjóð veitir Valgerður Þórunn Bjarnadóttir í síma 545 9500 eða í tölvupósti á [email protected]

  • Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvember 2012.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum