Hoppa yfir valmynd
29. október 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Reglugerð um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum

Reglugerðin tekur til réttinda og skyldna aðila skólasamfélagsins í allri starfsemi á vegum skóla, skólabrags, samskipta í skóla, skólareglna og málsmeðferðar vegna brota á þeim.

Til grunnskóla, skólaskrifstofa, skólanefnda, skólaráða og ýmissa hagsmunaaðila.


Mennta- og menningarmálaráðuneyti gaf út í október 2011 reglugerð nr. 1040/2011 um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum.
Hún tekur til réttinda og skyldna aðila skólasamfélagsins í allri starfsemi á vegum skóla, skólabrags, samskipta í skóla, skólareglna og málsmeðferðar vegna brota á þeim. Unnið hefur verið að innleiðingu reglugerðarinnar og m.a. settar ýmsar verklagsreglur og leiðbeiningar, bæði af hálfu ráðuneytisins og sveitarfélaga.

Í framangreindri reglugerð er í fyrsta sinn sett sérstakt ákvæði um fagráð í eineltismálum sem formlega var sett á laggirnar í mars sl. og kynnt fyrir skólasamfélaginu með frétt á vef ráðuneytisins.  

Í fagráðinu eru Arnheiður Gígja Guðmundsdóttir náms- og starfsráðgjafi, Páll Ólafsson félagsráðgjafi sem jafnframt er formaður ráðsins og Þórkatla Aðalsteinsdóttir sálfræðingur. Fagráðið hefur nú útbúið sérstakt eyðublað um vísun mála til ráðsins og er það aðgengilegt á vefnum www.gegneinelti.is.

Fagráðið væntir þess að með eyðublaðinu  verði auðveldara fyrir skólastjóra og foreldra að senda mál til fagráðsins, en þangað eiga ekki erindi önnur mál en þau sem ekki hefur náðst að leysa innan skóla eða sveitarfélags þrátt fyrir aðkomu allra hlutaðeigandi aðila í heimabyggð. Öll mál sem send verða til fagráðsins með hjálögðu eyðublaði verða skoðuð og metin og síðan tekin fyrir í fagráði að uppfylltum skilyrðum um málsmeðferð eða frekari gagna aflað. Hægt er að senda viðbótargögn vegna mála á netfangið [email protected] Fagráðið mun síðan afgreiða öll erindi eins fljótt og auðið er í samræmi við eðli máls.

Þann 8. nóvember nk. verður í annað sinn haldinn sérstakur baráttudagur gegn einelti. Ráðuneytið vill hvetja alla til að veita þessum degi sérstaka athygli og leggja þannig sitt af mörkum í þágu baráttunnar gegn einelti. Á vefsíðunni www.gegneinelti.is  er hægt að skrifa undir þjóðarsáttmála gegn einelti og beinir ráðuneytið því sérstaklega til allra aðila skólasamfélagsins að nýta tímann fram að baráttudeginum og sérstaklega  daginn sjálfan til að hvetja alla til að skrifa undir sáttmálann og taka efni hans til umfjöllunar með viðeigandi hætti.

Ráðuneytið fer þess vinsamlega á leit við alla viðtakendur þessa pósts að koma upplýsingunum á framfæri sem víðast.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum