Hoppa yfir valmynd
1. nóvember 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Skrifum öll undir þjóðarsáttmála gegn einelti

Þann 8. nóvember er í annað sinn haldinn sérstakur baráttudagur gegn einelti hér á landi þar sem þjóðin er hvött til að standa saman gegn einelti í samfélaginu, ekki síst í skólum og á vinnustöðum.



Þann 8. nóvember er í annað sinn haldinn sérstakur baráttudagur gegn einelti hér á landi þar sem þjóðin er hvött til að standa saman gegn einelti í samfélaginu, ekki síst í skólum og á vinnustöðum. Allir eru hvattir til að leggja sitt af mörkum til að einelti fái ekki þrifist í samfélaginu og skólar, samtök og vinnustaðir eru hvattir til að beina sjónum að jákvæðum samskiptum, jákvæðum skólabrag og starfsanda. 

Í tengslum við daginn eru allir hvattir til að skrifa undir þjóðarsáttmála gegn einelti, sem er aðgengilegur á vefsíðunni, www.gegneinelti.is.  Með undirritun sinni skuldbindur fólk sig til að vinna gegn einelti og markmiðið er að fá sem allra flesta til að skrifa undir sáttmálann. Með þessum pósti hvetur mennta- og menningarmálaráðuneytið allar stofnanir og samtök sem tengjast stjórnsýslusviði ráðuneytisins til að nýta tækifærið og kynna  þjóðarsáttmálann sérstaklega og taka efni hans til umfjöllunar í tengslum við baráttudaginn og hvetja jafnframt alla innan stofnunar eða samtaka að skrifa undir hann.  Ráðuneytið hvetur alla viðtakendur þessa tölvupósts til að beina sjónum sérstaklega að jákvæðum samskiptum og gagnkvæmri virðingu.

Í tengslum við verkefnið hafa verið framleidd gul armbönd, sem ýmsir þekkja frá síðasta ári,  með skilaboðum um jákvæð samskipti. Hægt er að panta eintök af armböndunum á meðan birgðir endast hjá afgreiðslu mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Skólar og samtök eru hvött til að nýta armböndin til að vekja athygli á þjóðarsáttmálanum.


Þjóðarsáttmáli gegn einelti

 

„Við undirrituð skuldbindum okkur til þess að vinna af alefli og einurð gegn einelti í samfélagi okkar. Við munum standa vörð um rétt fólks til þess að lifa í sátt og samlyndi við umhverfi sitt. Við munum sérstaklega gæta réttar barna og ungmenna sem og einnig allra hópa sem ekki eiga sér málsvara eða sterka rödd.Við munum öll hvert á okkar sviði, skuldbinda okkur til þess að hafa áhrif til góðs á nánasta umhverfi okkar. Við ætlum að vera góð fyrirmynd og leggja okkar af mörkum til þess að vinna bug á því samfélagslega böli sem einelti er. 
 


Með kveðju
Undirskrift Katrínar Jakobsdóttur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum