Hoppa yfir valmynd
7. nóvember 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Baráttudagur gegn einelti 8. nóvember 2012

Tökum höndum saman og helgum 8. nóvember baráttunni gegn einelti.

stöndum saman gegn einelti
stöndum saman gegn einelti

Verkefnisstjórn í aðgerðum gegn einelti hefur ákveðið að halda hátíðlegan Dag gegn einelti 8. nóvember 2012. Hún hvetur alla þá fjölmörgu aðila og samtök, sem starfa á þeim vettvangi sem átakið nær til, til þess að taka höndum saman og helga 8. nóvember baráttunni gegn einelti.  Sérstaklega er þessu beint til leikskóla,  grunn- og framhaldsskóla, félags- og frístundamiðstöðva, auk vinnustaða og stofnana á vegum ríkisins.  Ýmislegt er að hægt að gera í tilefni dagsins, s.s. að halda upp á hann með táknrænum hætti eða beina umræðunni að einelti og afleiðingum þess í samfélaginu.

Verkefnisstjórnin vonast til að sem flestir í samfélaginu taki þátt í því að setja umræðuna um einelti í brennidepil þennan dag - málefnið er brýnt og til mikils að vinna ef í sameiningu tekst að koma á þjóðarsáttmála um jákvæð og uppbyggileg samskipti.

  • Nánari upplýsingar um verkefnið má nálgast á vef verkefnastjóranrinnar www.gegneinelti.is


Í tilefni dagsins stendur verkefnastjórn um aðgerðir gegn einelti fyrir hátíðardagskrá í Þjóðmenningarhúsinu kl. 13:00 – 15:30.


Dagskrá

13:00 – Hljóðgerningur: Bjöllur, klukkur og flautur óma um allt land.

13:00 – Bjöllukór Tónstofu Valgerðar - tónverk

13:07–  Katrín Júlíusdóttir, fjármála- og efnahagsráðherra setur dagskrána.

13:17 – Gerður Kristný – ljóðalestur

13:27 – Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, flytur ávarp.

13:37 – Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráherra ásamt listakonunni Koggu veitir 
               viðurkenningu  vegna jákvæðra skilaboða gegn einelti til samfélagsins.

13:42 – Fulltrúi viðurkenningarhafa flytur ávarp: Myndbandasýning

13:52 – Sigurður Konráðsson, prófessor í íslensku við  Háskóla Íslands: Einelti sem hugtak

14:07 – Einar Gylfi Jónsson, sálfræðingur: Hvað einkennir góðan vinnustað?

14:22 – Hafþór Freyr Líndal og Vigdís Pála Halldórsdóttir, ungmennaráði SAFT: Rafrænt einelti

14:37 – Páll Ólafsson, félagsráðgjafi: Fagráð í eineltismálum grunnskóla

14:52 – Valdimar - tónlistaratriði

15:07 – Kaffi og kökur

15:30 – Dagskrárlok


Fundarstjóri er Þóra Arnórsdóttir
 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum