Auglýsing frá sænsk- íslenska samstarfssjóðnum
Árið 2013 verða veittir úr Sænsk-íslenska samstarfssjóðnum ferðastyrkir til að styðja íslenska þátttakendur í sænsk-íslenskum verkefnum
Árið 2013 verða veittir úr Sænsk-íslenska samstarfssjóðnum ferðastyrkir til að styðja íslenska þátttakendur í sænsk-íslenskum verkefnum. Markmið sjóðsins er að stuðla að auknu samstarfi Svíþjóðar og Íslands á sviði vísinda, menntunar og menningar.
Um styrki þessa skal sótt á sérstökum eyðublöðum sem er að finna á vefslóðinni www.nordiskafonder.se.
- Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2013 og skal skila umsóknum samkvæmt upplýsingum á heimasíðu sjóðsins.
- Styrkjum verður úthlutað í mars/apríl nk.
Stjórn sænsk- íslenska samstarfssjóðsins