Hoppa yfir valmynd
19. desember 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Bókasýningin í Frankfurt í tölum

Heildarverðmæti fjölmiðlaumfjöllunar í þýskum miðlum árið 2011 talið vera um 3 milljarðar kr.
Bókasýningin í Frankfurt í tölum
Bókasýningin í Frankfurt í tölum

Heiðursþátttaka Íslands á Bókasýningunni í Frankfurt er stærsta alþjóðlega menningarverkefni sem Ísland hefur tekið þátt í. Með þátttökunni var kastjósinu beint að íslenskum bókmenntum og rithöfundum, en einnig að öðrum listum. Nærri fjögur hundruð viðburðir voru í Þýskalandi í tengslum við verkefnið, 111 bókaútgefendur gáfu út 230 bækur eftir íslenska höfunda og um Íslandstengd efni og 1100 innslög voru um Ísland og/eða Sögueyjana í þýskumælandi fjölmiðlum árið 2011 og er heildarverðmæti þeirrar fjölmiðlaumfjöllunar talið vera um 3 milljarðar kr. 

251         viðburður var haldinn á vegum Sögueyjunnar árið 2011 í Þýskalandi, Austurríki og Sviss, fyrir utan
                Bókasýninguna í Frankfurt.

50           viðburðir voru haldnir í sýningarskála Íslands á Bókasýningunni í Frankfurt 12.-16. október 2011. Þetta voru
               upplestrar, viðtöl og blaðamannafundir .

76           upplestrar og viðtöl við höfunda voru á stöndum ýmissa fjölmiðla, útgefenda og menningarstofnanna á
                Bókasýningunni , fyrir utan sýningarskála Íslands .

11           sýningar af ýmsu tagi voru haldnar í stórum og smáum söfnum í Frankfurt .

14           viðburðir voru haldnir á Íslandi árið 2011 og 2012 á vegum Sögueyjunnar, m.a. var málþing helgað
                Íslendingasögum haldið á Bókmenntahátíð í Reykjavík árið 2011 sem Sögueyjan átti veg og vanda að.

75           fjölmiðlamenn frá Þýsklandi, Austurríki og Sviss  komu til Íslands á vegum Sögueyjunnar eða á eigin vegum í
                tengslum við heiðursþátttöku Íslands í Frankfurt .

1100      innslög um Ísland og/eða Sögueyjana voru í þýskumælandi fjölmiðlum árið 2011 (útvarp, sjónvarp, helstu
               stórblöð – minni fjölmiðlar eins og héraðsblöð ekki talin með).

111         bókaútgefendur  í Sviss, Austurríki og Þýskalalandi störfuðu með Sögueyjunnni í aðdraganda
                Bókasýningarinnar. Þessir útgefendur gáfu út bók eftir íslenskan höfund eða bók um Ísland.

230         bækur eftir íslenska höfunda og um Íslandstengd efni voru gefnar út á þýskum bókamarkaði árið 2011.

25           íslenskir höfundar tóku þátt í ýmsum upplestrum og bókmenntahátíðum í hinum þýskumælandi heimi á
               árunum 2008-2012, fyrir utan sjálfa Bókasýninguna.

42           íslenskir höfundar fóru á Bókasýninguna og voru þær ferðir samvinnuverkefni Sögueyjunnar og erlends
               útgefanda viðkomandi höfundar.

120         íslenskir listamenn fóru til Þýskalands í tengslum við Bókasýninguna á tímabilinu 2008-2012 og tóku þátt í
                ýmiss konar upplestrum, tónleikum, sýningum og blaðamannafundum svo fátt eitt sé nefnt.

30           gestir komu frá Þýskalandi til Íslands, aðrir en blaðamenn, í tengslum við verkefnið. Hér er um að ræða
               sýningarstjóra og listamenn svo dæmi séu tekin.

31           myndband um íslenskar bókmenntir og íslenskar listir var framleitt fyrir heimasíðu Sögueyjunnar,
                www.sagenhaftes-island.is, og fáanlegt þar á íslensku og einnig með þýskum texta og enskum.

27           viðtöl við íslenska höfunda og greinar undir liðnum „Höfundur mánaðarins“ á heimasíðu Sögueyjunnar.
               Viðtölin eru birt á þremur tungumálum: íslensku, þýsku og ensku. Fjölmörg smærri höfundaviðtöl voru auk
               þess birt á heimasíðunni.

21           grein um íslenskar bækur undir liðnum „Bók mánaðarins“ á heimasíðunni. Greinarnar birtast á þremur
                tungumálum: íslensku, þýsku og ensku. Fjölmargar smærri greinar og fréttir voru einnig birtar á
                heimasíðunni.

11           starfsmenn unnu við verkefnið, fjórir í Þýskalandi og sjö á Íslandi.

45           störfuðu fyrir Sögueyjuna á meðan á Bókasýningunni í Frankfurt stóð dagana 12.-16. október 2011 og unnu
                ýmis tilfallandi störf, sáu um akstur, aðstoðuðu rithöfunda og fleira.

3 milljarðar kr.:                 Heildarverðmæti fjölmiðlaumfjöllunar í þýskum miðlum árið 2011 skv. úttekt með
                                            viðurkenndum aðferðum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum