Hoppa yfir valmynd
24. janúar 2013 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Samkomulag um eflingu grunnmenntunar í raunvísindum og tækni

Mennta- og menningarmálaráðuneyti, Samtök iðnaðarins og Samband íslenskra sveitarfélaga sameinast um aðgerðaáætlun til að eflagrunnmenntun í raunvísindum og tækni.
Samkomulag um eflingu grunnmenntunar í raunvísindum og tækni
Samkomulag um eflingu grunnmenntunar í raunvísindum og tækni

Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, Halldór Halldórsson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og Svana Helen Björnsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins undirrituðu í dag samning um aðgerðaáætlun til að efla grunnmenntun í raunvísindum og tækni.

 „Grunnmenntun efld í raunvísindum og tækni“ eða GERT er heiti aðgerðaáætlunar Samtaka iðnaðarins, mennta- og menningarmálaráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga til að auka áhuga grunnskólanemenda á raunvísindum og tækni. Verkefnið hófst á síðasta ári með því að settur var á stofn samstarfshópur þessara aðila um aðgerðir til að auka áhuga 10-15 ára nemenda á raunvísindum og tækni. Hópurinn kortlagði stöðu raunvísinda- og tæknimenntunar m.t.t. frammistöðu nemenda, viðhorf og mat kennara og forspár um þörf fyrir raunvísinda- og tæknimenntað fólk. Jafnframt var sett fram aðgerðaáætlun og tillögur að næstu skrefum. Með samningnum er verkefninu haldið áfram og ráðinn hefur verið verkefnisstjóri og skipaður samvinnuvettvangur atvinnulífs, kennaramenntunar, raunvísinda og tæknimenntunar og grunnskóla. Verkefnið var kynnt á menntdegi iðnaðarins 24. janúar 2013.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum