Hoppa yfir valmynd
26. febrúar 2013 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Samningar við söfn

Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra undirritaði samninga við Síldarminjasafnið og Veiðisafnið.

Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Örlygur Kristfinnsson safnstjóri Síldarminjasafns Íslands undirrituðu nýlega samning um ráðstöfun styrktar-/rekstarframlags til Síldarminjasafnsins af fjárlögum fyrir árin 2013 til 2015 að báðum meðtöldum. Um er að ræða samning samkvæmt nýju samningsformi, sem ráðuneytið hefur tekið í notkun og sem tryggir reglulegt samráð og eftirlit með framkvæmd samningsins. Safnið fær 10,4 millj.kr. á yfirstandandi ári samkvæmt samningnum.

jafnframt undirrituðu ráðherra og Örlygur samning um framlag að upphæð 3,1 m.kr. á grundvelli heimildar í 11. gr. safnalaga nr. 106/2001 vegna stofnkostnaðar við svonefndan „Gamla Slipp“, á Siglufirði, sem fyrirhugað er að nota sem sýningar- og starfshús fyrir safnið. 

Þá hafa ráðherra og Páll Reynisson forstöðumaður Veiðisafnsins ses. undirritað samning um framlag að fjárhæð 2.410 þús.kr. til uppbyggingar húsnæðis safnsins á Stokkseyri á grundvelli heimildar safnalaga. Styrknum er ætlað til að fjármagna hluta af III. áfanga í uppbyggingu safnsins, sem er lokaáfangi í þeirri framkvæmd, sem hófst við uppbyggingu þess í janúar 2006 og þar verða vinnustofur, geymslur og starfsmannaaðstaða.

Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra undirritaði samninga við Síldarminjasafnið og VeiðisafniðKatrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Páll Reynisson forstöðumaður Veiðisafnsins

Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra undirritaði samninga við Síldarminjasafnið og VeiðisafniðKatrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Örlygur Kristfinnsson safnstjóri Síldarminjasafns Íslands

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum