Hoppa yfir valmynd
12. mars 2013 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Framkvæmdir hafnar við Hús íslenskra fræða

Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra tók fyrstu skóflustunguna að byggingunni.

Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra tók fyrstu skóflustunguna að byggingunni.
Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra tók fyrstu skóflustunguna að byggingunni.

Framkvæmdir við nýbyggingu Húss íslenskra fræða hófust með táknrænum hætti í gær þegar Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra tók fyrstu skóflustunguna að nýbyggingu fyrir starfsemi Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Íslensku- og menningardeildar Háskóla Íslands. Þá voru einnig undirritaðir samningar um fyrsta áfanga verksins, jarðvinnuframkvæmdir,  við verktakafyrirtækið  ÍAV hf. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, Guðrún Nordal forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar og Kristín Ingólfsdóttir rektor Háskóla Íslands fluttu ávörp við athöfnina og fram kom í máli þeirra mikil ánægja með að þessu langþráða áfanga var náð.

Hús íslenskra fræða mun rísa við Arngrímsgötu 5. Lóðin afmarkast af Suðurgötu til austurs, Guðbrandsgötu til suðurs, Arngrímsgötu til vesturs og Þjóðarbókhlöðu til norðurs. Framkvæmdin er hluti af fjárfestingaráætlun ríkisstjórnarinnar, sem ákveðin var í maí 2012. Í byggingunni verður fjölbreytt starfsemi Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Íslensku- og menningardeildar Háskóla Íslands. Þar verða ýmis sérhönnuð rými s.s. fyrir varðveislu, rannsóknir og sýningu á fornum íslenskum skinnhandritum, vinnustofur kennara og fræðimanna, lesrými fyrir nemendur á mismunandi stigum háskólanáms, fyrirlestra- og kennslusalir, almennar skrifstofur; bókasafn með lesrými auk kaffistofu og tækni- og stoðrýma. Húsið verður á þremur hæðum auk kjallara undir hluta þess, heildarflatarmál þess er tæpir 6.500 m2.

Efnt var til opinnar samkeppni á vormánuðum 2008 um hönnun hússins og fyrstu verðlaun hlutu Hornsteinar arkitektar en tæknilegur ráðgjafi þeirra var Almenna verkfræðistofan hf. Að hönnunarsamkeppni lokinni var gengið til samninga við hönnunarteymið um heildarhönnun byggingarinnar. Gert er ráð fyrir að heildarframkvæmdin taki rúm þrjú ár, jarðvinnuframkvæmdir hefjist í þessum mánuði og ljúki í lok maí 2013 og í beinu framhaldi taki annar verktaki við heildarverkinu. Áætlað er að framkvæmdin kosti rúma 3,4 milljarða króna og skiptist kostnaðurinn milli mennta- og menningarmálaráðuneytis og Háskóla Íslands í hlutföllum 70/30%.

Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra tók fyrstu skóflustunguna að byggingunni.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum