Hoppa yfir valmynd
12. apríl 2013 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Nám til framtíðar

Kynningarblað um nýjar aðalnámskrár og nýr upplýsingavefur.

Nám til framtíðar
Nám til framtíðar

Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur gefið út kynningarblað um nýju aðalnámskrárnar og er því dreift um allt land. Blaðinu er ætlað að kynna nemendum, foreldrum og öðrum hagsmunaaðilum nýjar áherslur í menntun leikskólabarna, grunn- og framhaldsskólanemenda. Þá hefur einnig verið opnaðu nýr vefur namtilframtidar.is, þar sem veittar eru upplýsingar um námsskrárnar, áherslur í menntamálum og fleira.

Heildarendurskoðun á aðalnámskrá fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla hófst með setningu nýrra laga fyrir þessi skólastig árið 2008. Árið 2011 komu út nýjar aðalnámskrár fyrir öll þrjú skólastigin eru fyrstu þrír kaflarnir sameiginlegir í þeim öllum og með því lögð áhersla á samfellu milli skólastiga. Aðalnámskrá fyrir greinasvið grunnskóla var gefin út á dögunum og með henni lauk þeirri heildarendurskoðun, sem fyrr greinir. Stefnt er að því að innleiðingu nýju aðalnámskránna verði að fullu lokið árið 2015.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum