Hoppa yfir valmynd
16. apríl 2013 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Vigdísarstofnun mun starfa undir formerkjum UNESCO

Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra afhenti frú Vigdísi Finnbogadóttur samstarfssamning íslenskra stjórnvalda og UNESCO.

Vigdísarstofnun mun starfa undir formerkjum UNESCO
Vigdísarstofnun mun starfa undir formerkjum UNESCO

Þann 15. apríl afhenti Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, frú Vigdísi Finnbogadóttur samstarfssamning íslenskra stjórnvalda og UNESCO, menningar-, mennta- og vísindastofnunar Sameinuðu þjóðanna, um að Vigdísarstofnun - alþjóðleg miðstöð tungumála og menningar starfi undir formerkjum UNESCO. Stofnunin heyrir undir Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum við Háskóla Íslands. Mennta- og menningarmálaráðherra hefur undirritað samninginn fyrir hönd íslenskra stjórnvalda en Vigdís mun að ósk Irinu Bokovu, aðalframkvæmdastjóra UNESCO, verða viðstödd þegar hún undirritar samninginn síðar í vor.

Aðalráðstefna UNESCO hefur þegar samþykkt samninginn einróma og felur sú ákvörðun í sér staðfestingu á því mikilvæga hlutverki sem alþjóðlegu tungumálamiðstöðinni er ætlað að gegna á heimsvísu. Þá er hún ekki síður viðurkenning fyrir mikilvægt framlag Vigdísar sem fyrsta og til þessa eina velgjörðarsendiherra tungumála á vettvangi UNESCO.

Háskóli Íslands hefur sett Vigdísarstofnun starfsreglur en hún er fyrsta tungumálamiðstöðin í heiminum, sem mun starfa undir formerkjum UNESCO. Alþjóðlegu tungumálamiðstöðinni er m.a. ætlað að stuðla að traustri tungumálakunnáttu og fjöltyngi til að auka skilning, samskipti og virðingu milli ólíkra menningarheima og þjóða, auka vitund um mikilvægi tungumála fyrir menningararfleið mannkyns og leggja sitt af mörkum til varðveislu tungumála. Þá er henni ætlað að efla þýðingar og þýðingafræði með það að markmiði að auka skilning og ánægju af menningarlegri fjölbreytni. Loks er stofnuninni ætlað að stuðla að rannsóknum og þekkingu á erlendum tungumálum og menningu. Auk þess vegsauka sem fylgir því að starfa undir formerkjum UNESCO er ljóst að í verkefninu felast mikil tækifæri til rannsókna og nýsköpunar, ekki síst í menningartengdri ferðaþjónustu, við miðlun rannsókna og í þekkingariðnaði.  

Vigdísarstofnun verður til húsa í nýrri byggingu sem mun rísa við Suðurgötu, næst gömlu Loftskeytastöðinni. Vonir standa til að framkvæmdir við bygginguna hefjist síðar á árinu og þar verður aðstaða til kennslu og rannsókna í þeim 14 erlendu tungumálum, sem kennd eru við Háskóla Íslands, auk aðstöðu fyrir erlenda gestafræðimenn og alþjóðasamstarf.  Í tungumálamiðstöðinni verður starfrækt þekkingarmiðstöð þar sem leikir og lærðir geta fræðst um erlend tungumál og menningu á lifandi og skapandi hátt.

  • Nánari upplýsingar veitir Auður Hauksdóttir, forstöðumaður Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum, í síma 894-9900.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum