Hoppa yfir valmynd
7. febrúar 2013 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til starfsemi atvinnuleikhópa 2013

Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur að fenginni tillögu leiklistarráðs úthlutað styrkjum til atvinnuleikhópa árið 2013.

Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur að fenginni tillögu leiklistarráðs úthlutað styrkjum til atvinnuleikhópa árið 2013. Alls sóttu 73 aðilar um styrki til 82 verkefna. Þá bárust 4 umsóknir um samstarfssamning til lengri tíma og 4 umsóknir um rekstrarstyrki. Eftirtalin verkefni hlutu styrki:

 Umsækjandi

 Verkefni

Úthlutun kr.

Aldrei óstelandi                             Lúkas 6.600.000
Asikli Hoyuk   Scape og Grace  1.900.000
Auðlind Róðarí 3.000.000
Barnamenningarfélagið Skýjaborg  Fetta Bretta 1.200.000
Brúðuheimar Aladín og töfralampinn 4.700.000
CommonNonsense Dagbók jazzsöngvarans  5.800.000
GRAL - Grindvíska atvinnuleikhúsið  Eiðurinn og eitthvað  6.800.000
Íslenska hreyfiþróunarsamsteypan Antiklímax 4.000.000
Kviss búmm bang Við hin 5.500.000
Lab Loki Stóru börnin 7.800.000
Leikhópurinn Bláskjár  Bláskjár 5.800.000
Málamyndahópurinn Fyrirgefningin 2.600.000
Melkorka Sigríður Magnúsdóttir og Sigríður Soffía Níelsdóttir Skrattinn úr sauðaleggnum  3.400.000
Nordpaa/Norður Fantastar  9.000.000
Sokkabandið  Kyrrð 7.900.000
Valgerður Rúnarsdóttir og Urður Hákonardóttir (Ó)raunvera  4.200.000
VaVaVoom Wide Slumber 8.000.000

Á fjárlögum 2013 eru 89,8 milljónir króna á fjárlagaliðnum „Styrkir til starfsemi atvinnuleikhópa“ en voru á síðasta ári 71,2 milljónir króna. Hækkunin stafar af framlagi frá fjárfestingaráætlun ríkisstjórnarinnar.

Í leiklistarráði eru Guðrún Vilmundardóttir formaður, skipuð án  tilnefningar, Sveinbjörg Þórhallsdóttir tilnefnd af Leiklistarsambandi Íslands og Hilmar Jónsson tilnefndur af Bandalagi sjálfstæðra leikhúsa.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum