Hoppa yfir valmynd
26. apríl 2013 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Krakkarnir í hverfinu, fyrir alla nemendur í 2. bekk grunnskóla

Brúðuleikhús á vegum vitundavakningar um kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum.

Krakkarnir í hverfinu, brúpuleikhús fyrir alla nemendur í 2. bekk grunnskóla
Samningur undirritaður um sýningar á brúðuleikhúsinu Krakkarnir í hverfinu

Samningur um  sýningar á árinu 2013 og 2014 á brúðuleikhúsinu Krakkarnir í hverfinu, fyrir alla nemendur í 2. bekk grunnskóla á vegum vitundavakningar um kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum, var undirritaður síðasta vetrardag, 24. apríl 2013. Samningurinn nær til endurtekinna sýninga en nú þegar hafa brúðuleikararnir, Hallveig Thorlacius og Helga Arnalds, verið með sýningar fyrir nemendur í öðrum bekk grunnskóla, skv. fyrra samningi. Með þessum tveimur samningum fá nemendur í 2. bekk grunnskóla, þrjú ár í röð, að sjá leiksýninguna. Fjallað er um ofbeldi í heimahúsum og kynferðislegt ofbeldi með samtali brúðanna og umræðum við áhorfendur og er markmiðið að fræða börn um kynferðisofbeldi og annað ofbeldi og auðvelda þeim að segja frá verði þau eða einhver í þeirra umhverfi fyrir slíku ofbeldi.

Sýningarnar hafa gengið mjög vel og fengið góðar móttökur, jafnt hjá nemendum sem kennurum og öðru starfsfólki.  Í framhaldi af þeim hafa tugir mála verið tilkynnt til barnaverndaryfirvalda vegna gruns um að barn hafi orðið fyrir ofbeldi.

Vitundarvakning um kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum er samstarfsverkefni innanríkisráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis og velferðarráðuneytis.

Samningur ráðuneytanna þriggja um vitundarvakninguna gildir út árið 2014 en í nýlegri skýrslu um kynferðisbrotamál er lagt til að vitundarvakningin verði útvíkkuð og fest í sessi til framtíðar. Verkefnisstjórn um vitundarvakningu mun vinna nánar að útfærslu þeirra tillagna.

Krakkarnir í hverfinu, brúpuleikhús fyrir alla nemendur í 2. bekk grunnskóla



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum