Hoppa yfir valmynd
10. maí 2013 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Ritstjórnarlegt sjálfstæði fjölmiðla - málþing

Fjölmiðlanefnd stendur fyrir opnu málþingi um reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði 16. maí nk.

Fjölmiðlanefnd stendur fyrir opnu málþingi um reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði að Hannesarholti við Grundarstíg 10, kl. 14.00 til 16.30 fimmtudaginn 16. maí n.k.

Fjallað verður um ákvæði laga um fjölmiðla nr. 38/2011 sem gera fjölmiðlum sem sinna fréttum og fréttatengdu efni að setja sér reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði starfsmanna. Fjölmiðlanefnd telur mikilvægt að stuðla að faglegri umræðu um skyldu fjölmiðla til að setja sér slíkar reglur og efni þeirra og tryggja að mismunandi sjónarmið komi fram, jafnt útgefenda, ritstjóra og blaðamanna.

Til umfjöllunar á málþinginu verður m.a. efni og inntak slíkra reglna og hvernig ritstjórnarlegu sjálfstæði sé best fyrir komið í þeim. Þá verður rætt um hvort sömu sjónarmið eigi að gilda um setningu reglna af þessu tagi fyrir prentmiðla og ljósvakamiðla, einkarekna miðla og ríkismiðla, staðbundna fjölmiðla, fjölmiðla sem ætlað er að ná til alls landsins og frímiðla og áskriftarmiðla. Ber að tryggja ritstjórnarlegt sjálfstæði ritstjóra og blaða- og fréttamanna gagnvart eigendum eða á eigendum að vera frjálst að móta og framfylgja eigin ritstjórnarstefnu? Eru aðrar leiðir hentugri til að tryggja réttindi blaða- og fréttamanna, t.d. í gegnum kjarasamninga eins og gert er á Norðurlöndunum?

Karl Axelsson, settur formaður fjölmiðlanefndar verður fundarstjóri og stýrir jafnframt pallborði. Elfa Ýr Gylfadóttir framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar mun fara yfir forsögu og inntak ákvæðis laga um fjölmiðla nr. 38/2011 um skyldu til að setja reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði starfsmanna. Að því loknu mun Pétur Árni Jónsson, útgefandi Viðskiptablaðsins og Fiskifrétta fjalla um hvort reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði eigi rétt á sér. Því næst tekur Ólafur Stephensen, ritstjóri Fréttablaðsins til máls og fjallar um mikilvægi siðareglna. Að lokum fjallar Björn Vignir Sigurpálsson frá Blaðamannafélagi Íslands um ritstjóra í lykilhlutverkum. Guðrún Hálfdánardóttir fréttastjóri mbl.is og Anna Kristín Jónsdóttir, stjórnarmaður í Félagi fréttamanna á Ríkisútvarpinu munu síðan taka þátt í pallborðsumræðum að loknum erindum ásamt frummælendum.


  • Málþingið er öllum opið og án endurgjalds.

Dagskrá málþingsins

 

14.00  Karl Axelsson, settur formaður fjölmiðlanefndar býður málþingsgesti velkomna.

14.10  Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar: Til hvers eru reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði? Forsaga
             og inntak 24. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011.

14.25  Pétur Árni Jónsson, útgefandi Viðskiptablaðsins og Fiskifrétta: Eiga reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði rétt á 
             sér?

14.40  Ólafur Stephensen, ritstjóri Fréttablaðsins: Mikilvægi siðareglna.

14.55  Björn Vignir Sigurpálsson, blaðamaður og formaður Siðanefndar BÍ: Ritstjórar í lykilhlutverki.

15.10  Kaffihlé

15.30  Pallborðsumræður. Karl Axelsson stýrir pallborðsumræðum. Í pallborði sitja auk frummælenda þær Guðrún
            Hálfdánardóttir, fréttastjóri mbl.is og Anna Kristín Jónsdóttir, sem situr í stjórn Félags fréttamanna á
            Ríkisútvarpinu.

16.30  Málþingi lýkur.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum