Hoppa yfir valmynd
24. maí 2013 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Fjarmenntaskólinn - samstarf um fjarnám á sviði starfsmenntunar

Sjö framhaldsskólar á landsbyggðinni hafa ákveðið að bjóða sameiginlega upp á fjarnám með áherslu á starfsnám. 

Sjö framhaldsskólar á landsbyggðinni hafa ákveðið að bjóða sameiginlega upp á fjarnám með áherslu á starfsnám.  Um er að ræða Fjölbrautaskóla Snæfellinga, Fjölbrautaskóla Norðurlands Vestra, Menntaskólann á Tröllaskaga, Framhaldsskólann á Húsavík, Menntaskólann á Egilsstöðum, Verkmenntaskóla Austurlands og Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu.  Í vor verður áhugi kannaður á námi á 15 námsbrautum og í kjölfarið tekin ákvörðun um hvað verður í boði á haustönn.  Námið fer fram með stuttum staðbundum lotum og í fjarnámi.  Miðað er við að hægt sé að taka námið samhliða vinnu.  Markmið skólanna er einkum að auka framboð á framhaldsskólanám á starfssvæði skólanna og á landinu öllu með hagkvæmum hætti. 

Í samstarfsyfirlýsingu um Fjarmenntaskólann segir:

„Fjölbrautaskóli Snæfellinga, Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra, Menntaskólinn á Tröllaskaga, Framhaldsskólinn á Húsavík, Menntaskólinn á Egilsstöðum, Verkmenntaskóli Austurlands og Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu lýsa yfir vilja sínum til að bjóða sameiginlega upp á fjarnám á framhaldsskólastigi undir merkjum Fjarmenntaskólans með áherslu á sérgreinar starfsnámsbrauta.  Jafnframt lýsa skólarnir yfir vilja til að gera formlegan samstarfssamning um fjarkennslu á framhaldsskólastigi með það markmiði að auka þjónustu við nemendur á starfssvæði skólanna og á landinu í heild“.

  • Nánari upplýsingar er að finna á vef Fjarmenntskólans fjarmenntaskolinn.is og hjá Eyjólfi Guðmundssyni skólameistara Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu, [email protected], 4708070, 8602958.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum