Hoppa yfir valmynd
4. júní 2013 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Nýjungar í kynningu á verknámi

Samvinnuverkefni Verkmenntaskóla Austurlands og Vinnuskóla Fjarðabyggðar um kynningu á verknámi fyrir grunnskólanemendur.
Nýjungar í kynningu á verknámi
Nýjungar í kynningu á verknámi

Verkmenntaskóli Austurlands og Vinnuskóli Fjarðabyggðar hafa tekið höndum saman  um nýja leið til að kynna verknám fyrir grunnskólanemendum. Allir þeir sem luku 9. bekk grunnskóla í Fjarðabyggð í vor og skráðir eru í Vinnuskóla Fjarðabyggðar hefja vinnuna í Verkmenntaskóla Austurlands. Þar starfa þeir í hópum í fjórum deildum skólans, málm-, tré-, hár- og rafdeildum undir leiðsögn kennara. Á verkstæðunum gera þeir ýmsa hluti úr tré og málmi sem þeir munu eiga til minninga. Verkefnið hófst 3. júní og í lok vikunnar verður foreldrum og velunnurum boðið til uppskerudags.

Í tilkynningu frá Verkmenntaskóla Austurlands segir: „Undirbúningur að þessu verkefni hefur staðið frá því að hugmyndin fæddist sl. vor í kynnisferð starfsfólks Verkmenntaskóla Austurlands til Svíþjóðar. Fyrirtæki í Fjarðabyggð styðja við verkefnið fjárhagslega og er verkaskipting milli aðila þessi: Verkmenntaskóli Austurlands skipuleggur verkefnið, heldur utan um það og leggur til húsnæðið. Kennarar  skólans sjá um kennsluna og allt sem að henni lýtur.  Sveitarfélagið Fjarðabyggð greiðir nemendum Vinnuskólans laun og skipuleggur ferðir þeirra. Stuðningsaðilarnir greiða laun kennara, efniskostnað og ferðalög til og frá skólanum. Þau fyrirtæki eru Alcoa Fjarðaál, Eskja, G. Skúlason, Launafl, Loðnuvinnslan, Síldarvinnslan og Vélaverkstæði Hjalta Einarssonar.

Það er mikil áhersla á kynningu iðn- og tæknináms í landinu. Þar liggja tækifæri ungs fólks til náms og atvinnu. Fjarðabyggð er mjög öflugt atvinnusvæði ekki síst m.t.t. starfa í iðnaði. Það er von þeirra sem að þessu standa að þessi tilraun skili sér í meiri aðsókn í iðn- og tækninám á komandi árum“.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum