Hoppa yfir valmynd
27. júní 2013 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Samningur við Verkiðn

Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra undirritaði samning við Verkiðn um ráðstöfun framlags vegna keppna í iðn- og verkgreinum.

Í dag undirrituðu Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra og Björn Ágúst Sigurjónsson formaður Verkiðnar samstarfssamning við Verkiðn um Íslandsmót iðn- og verkgreina árið 2014 og þátttöku íslenskra keppenda á World Skills í Brasilíu árið 2015. Samningurinn er liður í að auka sýnileika iðn- og starfsmenntunar og bæta ímynd iðn- og verkgreina.

Verkiðn eru samtök um keppnir í iðn- og verkgreinum á Íslandi – SkillsIceland. Markmið þeirra er að auka sýnileika iðn- og starfsmenntunar, bæta ímynd iðn- og verkgreina, halda Íslandsmót iðn- og verkgreina annað hvert ár og vekja athygli á tækifærum sem felast í námi og starfi í þessum greinum. Auk þess eru samtökin samstarfsaðili við erlenda aðila og samtök sem vinna á sama grunni. Verkiðn skipuleggur þátttöku Íslands í World Skills – heimsmeistaramóti iðn- og starfsnámsnemenda.

Aðild að Verkiðn eiga fagfélög launamanna og atvinnurekenda, hagsmunasamtök iðnaðarmanna og framhaldsskóla eða samtök þeirra. Samtök nemenda í framhaldsskólum (SÍF) eiga rétt á fulltrúa í fulltrúaráði með málfrelsi og tillögurétt.

Í tilefni af undirritunun samningsins hélt ráðherra móttöku fyrir íslensku keppendurna, sem munu etja kappi við erlenda keppendur á World Skills keppninni í Leipzig í Þýskalandi í næstu viku. Þeir eru:

Börkur Guðmundsson, keppandi í rafvirkjun, Laufey Dröfn Matthíasdóttir, keppandi í grafískri miðlun og Þorri Pétur Þorláksson, keppandi í pípulögnum. Liðsstjóri Íslands í World Skills keppninni er Lilja Sæmundsdóttir.

Samningur við VerkiðnÁ myndinni eru talið frá vinstri: Björn Ágúst Sigurjónsson, Illugi Gunnarsson, Þorri Pétur Þorláksson, Laufey Dröfn Matthíasdóttir, Börkur Guðmundsson og Lilja Sæmundsdóttir.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum