Hoppa yfir valmynd
20. september 2013 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Norræna ráðstefna til að stemma stigu við hugverkabrotum á netinu

Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra ávarpaði ráðstefnu á vegum NAPO – Nordic Anti Piracy Operation.

Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra ávarpaði ráðstefnu á vegum NAPO – Nordic Anti Piracy Operation, sem fram fer á Hilton Nordica dagana 19. og 20. september. Efni ráðstefnunnar er hvernig hægt sé að stemma stigu við hugverkabrotum á netinu. Þátttakendur eru rétthafar og löggæsluyfirvöld frá Norðurlöndum.

Í ávarpi sínu lagði ráðherra m.a. áherslu á að notendum standi löglegir kostir til boða til að njóta tónlistar, kvikmynda og sjónvarpsefnis um netið, sem séu einfaldari og aðgengilegri en að sækja efnið með ólöglegum hætti. Mikilvægt sé að fræða unga kynslóð netnotenda um efnahagslega og menningarlega þýðingu höfundaréttar. Loks lagði ráðherra áherslu á að réttarúrræði í þágu rétthafa séu skjót, skilvirk og hafi fyrirbyggjandi áhrif. Þá tók ráðherra fram vegna umræðu um lokun aðgangs að vefsvæðum sem eru uppspretta ólöglegs efnis, að slíkar ákvarðanir ættu að vera í höndum dómstóla en ekki stjórnvalda.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum