Hoppa yfir valmynd
14. október 2013 Mennta- og barnamálaráðuneytið

„Byggjum á grænum grunni“

Ráðstefna fyrir þátttakendur í verkefninu Skólum á grænni grein, Grænfánaverkefninu.
Ráðstefna fyrir þátttakendur í verkefninu Skólum á grænni grein, Grænfánaverkefninu.
Ráðstefna fyrir þátttakendur í verkefninu Skólum á grænni grein, Grænfánaverkefninu.

„Byggjum á grænum grunni“ var yfirskrift ráðstefnu fyrir þátttakendur í verkefninu Skólum á grænni grein, Grænfánaverkefninu, sem haldin var á vegum Landverndar föstudaginn 11. október sl. í Hörpu. Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra ávarpaði ráðstefnuna og sagði m.a. að öflug þátttaka skóla í Grænfánaverkefninu hafi góð og jákvæð áhrif á umhverfisvitund nemenda, stuðli að góðri og heildstæðri umhverfisfræðslu og gefi ótal tækifæri til innleiðingar á grunnþætti sjálfbærni og lýðræði í skólastarfi.

Ráðstefnuna sóttu um 120 manns og var fjallað um endurskoðun Grænfánaverkefnisins og áherslur Landverndar í verkefninu næstu þrjú ár. Þá voru málstofur um viðfangsefni sem hafa reynst meiri áskorun en önnur í skólum og að lokum var fjallað um innleiðingu menntunar til sjálfbærni í skólastarfi. Í málstofunum var fjallað um loftslagsbreytingar, lýðræði og lýðræðislega þátttöku og lífbreytileika (líffræðilega fjölbreytni).

Fyrirlesarar á ráðstefnunni voru fjórtán talsins, auk starfsmanna Landverndar, þeirra á meðal Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur, Ingileif Ástvaldsdóttir skólastjóri Þelamerkurskóla, Snorri Sigurðsson líffræðingur og Kirsten Leask verkefnisstjóri Skóla á grænni grein í Skotlandi, Björg Pétursdóttir í mennta- og menningarmálaráðuneytinu og Sigrún Helgadóttir náttúrufræðingur.

Skólar á grænni grein er alþjóðlegt verkefni til að auka umhverfismennt og styrkja umhverfisstarf í skólum. Hér á landi er verkefninu stýrt af Landvernd sem er aðili að alþjóðlegu samtökunum FEE. Vorið 2002 voru þrír fyrstu Grænfánarnir dregnir að húni á Íslandi. Þátttökuskólar nú eru um 230 á öllum skólastigum. 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum