Dagur íslenskrar tungu 16. nóvember
Mennta- og menningarmálaráðuneytið hvetur skóla og aðrar stofnanir, sem og landsmenn alla, til að huga að því að nota 16. nóvember, eða dagana þar í kring, til að hafa íslenskuna alveg sérstaklega í öndvegi.
Degi íslenskrar tungu, fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, verður fagnað í átjánda sinn laugardaginn 16. nóvember 2013. Þá skal draga fána að hún á húsum opinberra stofnana.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið hvetur skóla og aðrar stofnanir, sem og landsmenn alla, til að huga að því að nota 16. nóvember, eða dagana þar í kring, til að hafa íslenskuna alveg sérstaklega í öndvegi. Hægt er að minnast dagsins með margvíslegu móti, t.d. upplestri, leikþáttum, útgáfu, verðlaunum, viðurkenningum, handritasýningum, bóka- og rithöfundakynningum, tónlistarflutningi og samkomum af ýmsu tagi.
Vefir dags íslenskrar tungu:
Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur falið Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum að annast ýmsa verkþætti í tengslum við viðburði á degi íslenskrar tungu 2013. Þeir sem vilja kynna viðburði sína á vef dags íslenskrar tungu eru hvattir til að senda upplýsingar á netfangið: [email protected]. Þangað má jafnframt beina fyrirspurnum um hvað eina sem varðar hátíðisdaginn.