Hoppa yfir valmynd
7. nóvember 2013 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Mikil aukning í íþróttaiðkun stúlkna

Niðurstöður úr æskulýðsrannsókninni „Ungt fólk 2013 í 5., 6. og 7. bekk grunnskóla“  hafa verið kynntar.


Niðurstöður úr æskulýðsrannsókninni „Ungt fólk 2013
Niðurstöður úr æskulýðsrannsókninni „Ungt fólk 2013

Niðurstöður úr æskulýðsrannsókninni „Ungt fólk 2013“ í 5., 6. og 7. bekk grunnskóla voru kynntar í dag. Þær eru byggðar á könnun, sem var lögð fyrir nemendur í öllum grunnskólum landsins í febrúar 2013, um líðan, menntun, menningu, tómstundir, íþróttaiðkun og framtíðarsýn.  Rannsóknir og greining ehf. gerði rannsóknina fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið.

Frá árinu 1992 hefur mennta- og menningarmálaráðuneytið stuðlað að því að gerðar hafa verið faglegar, samanburðarhæfar rannsóknir á högum, líðan og aðstæðum barna og ungmenna hér á landi undir heitinu Ungt fólk. Það er talið hverri þjóð mikilvægt að eiga slíkar langtímarannsóknir um líðan, viðhorf og aðstæður barna og ungmenna á hverjum tíma og hefur Ísland verið í fararbroddi þróunar á rannsóknum af þessu tagi mörg undanfarin ár. Æskulýðsrannsóknirnar Ungt fólk eru gerðar meðal nemenda í 5. til 10. bekk í öllum grunnskólum og í öllum árgöngum framhaldsskóla landsins með reglulegu millibili. Þær þykja einstæðar á heimsvísu m.a. sökum þess að þær ná til allra ungmenna í landinu.

Starfsfólk Rannsókna og greiningar, þau Hrefna Pálsdóttir, Margrét Lilja Guðmundsdóttir, Inga Dóra Sigfúsdóttir, Ingibjörg Eva Þórisdóttir og Jón Sigfússon, kynntu helstu niðurstöður rannsóknarinnar og þar kom m.a. fram:

  • Nokkuð hátt hlutfall nemenda í 5. – 7. bekk segist eiga erfitt með að sofa eða sofna, hefur litla matarlyst og hefur fundið fyrir höfuðverk og magaverk. Þetta má telja athyglisvert, einkum þar sem um er að ræða ung börn að árum.
  • Mikil aukning hefur orðið frá árinu 2007 á íþróttaiðkun (4x í viku eða oftar) og þá sérstaklega meðal stelpna.
  • Nemendur sem æfa íþróttir með íþróttafélagi eru síður líklegir til að upplifa sig einmana (sl. sjö daga fyrir könnun). Um 17% nemenda sem segjast aldrei æfa íþróttir sögðust stundum eða oft finna fyrir einmanaleika á meðan hlutfallið er 7% meðal nemenda sem æfa fjórum sinnum í viku eða oftar.
  • Samverustundir með foreldrum eru miklar og aukast. Yfir 90% nemenda segjast stundum eða oft vera með foreldrum sínum um helgar og yfir 70% nemenda segjast stundum eða oft vera með foreldrum sínum eftir skóla.
  • Fleiri nemendur segjast stundum eða oft vera einir heima eftir skóla (ekki með fjölskyldu) en árið 2011, eða um 47% nemenda.
  • Um 6-9% nemenda segja að þeir eigi enga eða fáa vini.
  • Um 12 - 17% nemenda í 5., 6. og 7. bekk segja það eiga mjög eða frekar illa við um þau að foreldrar þeirra þekki foreldra vina eða vinkvenna þeirra.
  • Þá segja um 8,5% (145) stráka í 5.bekk og um 5,8% stelpna (101) að þeim sé stundum eða oft strítt í frímínútum á skólalóðinni. Þá segja um 5 - 7% nemenda þeim líði frekar eða mjög illa í frímínútum sem eru svipaðar niðurstöður og fengust árið 2011.
  • Fleiri strákar en stelpur telja að námið sé oft eða alltaf erfitt. Þá telja líka fleiri strákar en stelpur að námið sé of létt.
  • Um 6 - 9% nemenda í  5., 6. og 7. bekk segja að þeim líði oft eða alltaf illa í kennslustundum, sem eru eilítið færri en árið 2011.

Heildarniðurstöður verða gefnar út á bók og birtar á vef ráðuneytisins og Rannsóknar og greiningar ehf.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum