Fyrsta úthlutun úr Hönnunarsjóði
Veittir eru styrki til margvíslegra verkefna á sviði hönnunar og arkitektúrs, þ.e. þróunar og rannsókna, verkefna og markaðsstarfs auk sérstakra ferðastyrkja.
Hönnunarsjóður hefur úthlutað styrkjum til hönnuða og arkitekta, samtals að fjárhæð um 41 milljón kr. Yfir 200 umsóknir bárust sjóðnum og samtals var sótt um yfir 400 m.kr. Veittir eru styrki til margvíslegra verkefna á sviði hönnunar og arkitektúrs; þróunar og rannsókna, verkefna og markaðsstarfs auk sérstakra ferðastyrkja.
Styrkir verða veittir til 29 verkefna auk þess sem veittir verða 20 ferðastyrkir til 13 verkefna. Styrkfjárhæðirnar eru flestar á bilinu 1 - 2,5 m.kr. en hæsti styrkurinn er 3,8 m.kr. að þessu sinni. Ferðastyrkirnir nema allir 100 þús.kr.
Meðal verkefna sem hljóta styrki eru nýjar fatalínur bæði eldri og yngri fatahönnuða. Þá hljóta fatahönnunarfyrirtæki og vöru- og húsgagnahönnuðir styrki til markaðssetningar erlendis. Einnig hljóta verkefni á sviði grafískrar hönnunar, arkitektúrs, leirkerahönnunar, skartgripahönnunar og textílhönnunar styrki.
Fimm rannsóknar- og söguskráningarverkefni hljóta styrki að þessu sinni enda er skrásetningu hönnunarsögu ábótavant hér á landi að mati stjórnar sjóðsins.
Styrkirnir dreifast jafnt til ungra hönnuða, sem eru að stíga sín fyrstu skref og reyndari hönnuða sem hyggja á frekari landvinninga.
Hönnunarsjóður heyrir undir mennta- og menningarmálaráðuneyti og er tekjustofn hans árlegt framlag sem Alþingi ákveður á fjárlögum. Í ár er framlag til sjóðsins 45 m.kr.
Megin hlutverk hönnunarsjóðs er að efla þekkingu, ásamt atvinnu- og verðmætasköpun á sviði hönnunar og arkitektúrs með fjárhagslegum stuðningi. Sjóðurinn styrkir jafnframt kynningar- og markaðsstarf erlendis sem stuðlar að auknum útflutningi íslenskrar hönnunar.
Við úthlutun sjóðsins er lögð áhersla á fjóra flokka: þróunar- og rannsóknarstyrki, verkefnastyrki, markaðs- og kynningarstyrki og ferðastyrki.
Listi yfir styrkþega:
As We Grow ehf. | Markaðssetning erlendis á barnafatalínu | 1.500.000 |
Bryndís Bolladóttir | Markaðssetning erlendis á kÚLU | 1.500.000 |
Scintilla ehf | Scintilla í samstarf við KJR Home | 1.500.000 |
Steinunn Sigurd ehf. | STEiNUNN - KARLMANNSLÍNA | 1.500.000 |
Sigrún Alba Sigurðardóttir | Arkitektúr hugmyndanna - hugmyndir arkitekta | 1.000.000 |
Kristín Þorleifsdóttir | Bók um borgarrými | 1.000.000 |
Kristbjörg Guðmundsdóttir | DUFTKER - ÞRÓUNARVERKEFNI | 1.000.000 |
Einar E. Sæmundsen | Garðsaga Íslands | 1.000.000 |
Halldóra Arnardóttir | Íslensk híbýlafræði: Kristín Guðmundsdóttir | 1.000.000 |
Jón Helgi Hólmgeirsson | Jónófón | 1.000.000 |
Sigríður Rún Kristinsdóttir | Líffærafræði Leturs | 1.000.000 |
Guðmundur Oddur Magnússon | Saga Grafískrar Hönnunar á Íslandi | 1.500.000 |
Atli Hilmarsson | Sumarnámskeið í grafískri hönnun | 1.000.000 |
Guðbjörg Kristín Ingvarsdóttir | Markaðs- og sölusókn í Bretlandi | 930.000 |
Helga Ósk Einarsdóttir | Milla | 880.000 |
Unnur Valdís Kristjánsdóttir | Float | 750.000 |
Magnea Einarsdóttir | Magnea | 750.000 |
Erla Sólveig Óskarsdóttir | Dyngja og Hyrna á Norðurlandamarkað | 700.000 |
Inga S. Ragnarsdóttir | Deiglumór | 600.000 |
Fatahönnunarfélag Íslands | Sýning á Hönnunarmars 2014 | 350.000 |
Eftirtaldir hlutu ferðastyrk að upphæð 100.000kr. :
Anna María Bogadóttir, Anna Þórunn Hauksdóttir, Auður Ösp Guðmundsdóttir, Elísabet Agla Stefánsdóttir, Embla Vigfúsdóttir, Guðbjörg Káradóttir, Guðmundur Jörundsson, Hildigunnur Sverrisdóttir, Hildur Steinþórsdóttir, Hörður Lárusson, Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir, Kristrún Thors, María Manda Ívarsdóttir, Marý Ólafsdóttir, Ólöf Jakobína Ernudóttir, Sigríður Sigurjónsdóttir, Sigrún Halla Unnarsdóttir, Sigurjón Pálsson, Sturla Már jónsson og Thibaut Allgayer.