Hoppa yfir valmynd
9. janúar 2014 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Málþing um margbreytileika fjölskyldugerða 17. janúar

Velferðarvaktin stendur fyrir málþingi 17. janúar næstkomandi um margbreytileika fjölskyldugerða.

Velferðarvaktin stendur fyrir málþingi 17. janúar næstkomandi um margbreytileika fjölskyldugerða þar sem meðal annars verður rætt hvernig börn við ólíkar aðstæður skilgreina fjölskyldur sínar og hvort opinber fjölskyldustefna taki mið af fjölbreytilegum fjölskylduformum.

Velferðarvaktin heldur málþingið í samstarfi við velferðarráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti, Heimili og skóla, Kennarasamband Íslands og Félags stjúpfjölskyldna.

Því hefur verið haldið fram um langt árabil að fjölskyldan sé hornsteinn samfélagsins, þar stígi börnin sín fyrstu spor og þar sé grunnur lagður að framtíð þeirra. Í ljósi þessa þykir velferðarvaktinni tímabært að spyrja hvort samfélagið taki í raun mið af þeim margbreytileika sem birtist þegar fjallað er um ólíkar fjölskyldugerðir. 

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, flytur ávarp í upphafi málþingsins og Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra flytur ræðu við þinglok.

Málþingið verður haldið í húsi menntavísindasviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð og stendur frá kl. 12.30 til 16.10.

Dagskrá

Tekur samfélagið mið af margbreytileika fjölskyldugerða?

Fundarstjóri Þóra Arnórsdóttir, fréttamaður

12.30     Opnun málþings - Lára Björnsdóttir, formaður Velferðarvaktarinnar

12.40     Ávarp - Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra

12.55     Stjúpfjölskyldur, best geymda leyndarmálið - Sigríður Dögg Auðunsdóttir, ritstjóri

13:15     „Á ég að teikna fjölskylduna mína?“ - Edda Guðmundsdóttir, umsjónarkennari í Hvaleyrarskóla í Hafnarfirði

13.35     Fjölskyldugerðir í barnaverndarmálum - Páll Ólafsson, félagsráðgjafi og sviðsstjóri ráðgjafar- og fræðslusviðs Barnaverndarstofu

13.55     Tekur fjölskyldustefna mið af margbreytileika fjölskyldna? – Guðný Björk Eydal, félagsráðgjafi og prófessor við félagsráðgjafadeild HÍ

14.15     Kaffihlé

14.45     „Það er flóknara að vera í stjúpfjölskyldu en ég átti von á“. Kynning á könnun. Valgerður Halldórsdóttir, félagsráðgjafi, aðjúnkt og formaður Félags stjúpfjölskyldna

15.10     Pallborð – Næstu skref:

Dr. Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf við HÍ

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði

Ketill Magnússon, formaður Heimilis og skóla

Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu

Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna

15.45     Samantekt - Gunnar Einarsson, bæjarstjóri  í Garðabæ

16.00     Ráðstefnuslit – Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra

Aðgangseyrir 1800 kr. Tekið er á móti greiðslum í reiðufé eða með greiðslukorti.

Velferðarvaktin var stofnuð að frumkvæði stjórnvalda snemma árs 2009 til að fylgjast með afleiðingum efnahagshrunsins á heimilin í landinu. Hún er óháður greiningar- og álitsgjafi sem leggur fram tillögur til stjórnvalda og hagsmunasamtaka og fylgir þeim eftir. Að velferðarvaktinni standa samtök, aðilar vinnumarkaðarins, ráðuneyti, ríkisstofnanir og sveitarfélögin, sjá nánar á vef velferðarráðuneytis.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum