Hoppa yfir valmynd
29. janúar 2014 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Auglýsing frá Menningarsjóði Íslands og Finnlands

Tilgangur sjóðsins er að efla menningartengsl Finnlands og Íslands. Í því skyni veitir sjóðurinn árlega ferðastyrki og annan fjárstuðning. 

Tilgangur sjóðsins er að efla menningartengsl Finnlands og Íslands. Í því skyni veitir sjóðurinn árlega ferðastyrki og annan fjárstuðning. Styrkir verða öðru fremur veittir einstaklingum en stuðningur við samtök og stofnanir kemur einnig til greina.

Styrkir til að sækja norrænar eða alþjóðlegar ráðstefnur koma að jafnaði ekki til greina.· Umsóknarfrestur um styrki úr sjóðnum fyrir tímabilið 1. júní 2014 - 31. maí 2015 rennur út þann 28. febrúar 2014. 
Ákvörðun um úthlutun úr sjóðnum verður tekin fyrir lok maí nk. 
  • Athygli er vakin á að nú er einungis hægt að sækja um rafrænt á www.hanaholmen.fi.
  • Æskilegt er að umsóknir séu ritaðar á sænsku, dönsku eða norsku. 
  • Fyrirspurnir má senda á: [email protected]
Stjórn Menningarsjóðs Íslands og Finnlands.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum