Hoppa yfir valmynd
4. febrúar 2014 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Umsóknir um styrki til norsks-íslensks menningarsamstarfs

Umsóknarfrestur um styrki rennur út 1. mars 2014

 

  • Framlag til norsks-íslensks menningarsamstarfs

Árið 1994 ákváðu norsk stjórnvöld að leggja til árlegt framlag til norsks-íslensks menningarsamstarfs sem Haraldur V Noregskonungur kynnti í heimsókn sinni til Íslands vegna 50-ára afmælis íslenska lýðveldisins. Framlaginu skyldi ráðstafað í samráði íslenska mennta- og menningarmálaráðuneytisins og Norsk kulturråd (Norska menningarráðsins). Hið árlega framlag er nú um 1.300.000 norskar krónur.

Markmið framlagsins er að stuðla að fjölbreyttu menningarsamstarfi Noregs og Íslands og geta Norðmenn og Íslendingar sótt um framlag til verkefna sem mikilvæg teljast í báðum löndum og vera líkleg til að leiða til varanlegra tengsla milli fagmanna, listamanna og fræðimanna. Verkefnin skulu endurspegla fjölbreytt listræn form og hafa í senn skírskotun til sögunnar og samtímans.  

  • Leiðbeiningar fyrir umsækjendur

Umsækjendur skulu senda verkefnalýsingu til Norsk kulturråd með upplýsingum um markmið verkefnisins ásamt verkefnis-, framkvæmdar-, fjárhags- og fjármögnunaráætlun. Staðlað umsóknareyðublað er ekki fyrir hendi en umsóknir má senda rafrænt til [email protected] eða til Norsk kulturråd, Postboks 8052 Dep, N-0031 Oslo.

  • Umsóknarfrestur um styrki rennur út 1. mars 2014.

Ef framlagið hefur ekki verið fullnýtt eftir aðalúthlutun í apríl munu umsóknir verða metnar að nýju að hausti. Að verkefni loknu skal skýrslu skilað til Norsk kulturråd í samræmi við þær reglur sem gilda fyrir ríksisstyrkþega.

  • Athugið: Umsóknir skulu vera á norsku, dönsku sænsku eða ensku.

Að jafnaði er áhugamannahópum svo sem kórum og hljómsveitum ekki veittur ferðastyrkur. Ekki er greiddur heildarkostnaður verkefna.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum