Hoppa yfir valmynd
7. febrúar 2014 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn 2014 11. febrúar

Mennta- og menningarmálaráðuneytið, innanríkisráðuneytið, velferðarráðuneytið, Póst og fjarskiptastofnun og SAFT standa fyrir ráðstefnu um Internetið á alþjóðlega netöryggisdeginum

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn 2014  11. febrúar 2014

Mennta- og menningarmálaráðuneytið, innanríkisráðuneytið, velferðarráðuneytið, Póst og fjarskiptastofnun og SAFT standa fyrir ráðstefnu um Internetið á alþjóðlega netöryggisdeginum,  11. febrúar 2014. Ráðstefnan verður haldin í húsakynnum Menntavísindasviðs HÍ við Stakkahlíð.

Ekkert þátttökugjald. Skráning á Facebook eða með pósti á [email protected] Áhugasamir um þátttöku í málstofum sendi tölvupóst á [email protected]

Dagskrá

11.40 – 12.00  Skráning

12.00 – 12.15  Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, býður gesti velkomna og setur ráðstefnuna.

12.15 – 12.25  Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, flytur ávarp.

12.25 – 12.35  Sigríður Hallgrímsdóttir, aðstoðarmaður mennta- og menningarmálaráðherra, flytur ávarp

12.40 – 13.00  Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar: Af hverju þarf samráðsvettvang um stefnumótun um málefni internetsins? Vernd barna, miðlalæsi, frelsi og öryggi á internetinu sett í alþjóðlegt samhengi.

13.00 – 13.20  Almar M. Halldórsson, verkefnisstjóri PISA hjá Námsmatsstofnun – Læsi íslenskra nemenda síðastliðinn áratug samkvæmt PISA könnun OECD.

13.20 – 13.40  Bjartur Thorlacius, ungmennaráð SAFT: Tjáning gegn hatri

13.40 – 14.00 Kaffihlé

14.00 – 16.00 Málstofur

1.       Ábyrgð og vernd Íslendinga á netinu

Hvernig tryggjum við öryggi fólks á netinu og hvetjum til ábyrgrar notkunar nýrrar tækni? Hvert er hlutverk foreldra, skóla og samfélagsins? Hvaða reglur gilda um Internetið þegar tjáningarfrelsið er annars vegar? Hver er ábyrgur fyrir því efni sem birt er? Hvaða leiðir eru færar fyrir Íslendinga þegar ólöglegt efni og meiðyrði er vistað hjá erlendum aðilum? Hvaða rétt höfum við til tjáningar og til upplýsingaöflunar? Er Ísland eyland, eða þurfum við að taka tillit til löggjafar annarra ríkja? Hvað segja niðurstöður rannsókna um netnotkun Íslendinga?

Málstofustjórar eru Ingimar Karl Helgason, blaðamaður og Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdarstjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands. Umsjón málstofu Steinunn Pieper, Mannréttindaskrifstofa Ísland og Sólveig Karlsdóttir, Heimili og skóli – Landssamtök foreldra. Meðal þátttakenda verða fulltrúi ungmennaráðs, Ólafur Elínarson, ráðgjafi hjá Capacent, Hrefna Sigurjónsdóttir, Heimili og skóli, Ívar Schram, verkefnastjóri hjá Rauða krossinum og Margrét Júlía Rafnsdóttir, Barnaheill – Save the Children Iceland. Ritari málstofu er Björn Rúnar Egilsson, verkefnastjóri SAFT.

2.       Varðveisla persónuupplýsinga

Kröfur um trausta innviði fjarskipta og öryggi fjarskiptakerfa verða stöðugt meiri, í takt við síaukna og fjölbreyttari notkun Internetsins sem vinnutækis, þjónustuleiðar og afþreyingar í daglegu lífi. Á sama tíma steðja að Internetinu fjölbreyttar og síbreytilegar öryggisógnir.   Sterkar kröfur eru því uppi um að efla öryggi notenda, gagna og búnaðar á netinu.  Rætt er um hvaða ábyrgð stjórnvöld, markaðsaðilar og almennir notendur hafa á þessu sviði. Hvert er hlutverk og ábyrgð stjórnvalda og markaðsaðila til að efla öryggi Netsins? Hvernig á að tryggja fjarskiptainnviði á Íslandi. Er öryggi nægjanlegt? Er þörf á frekari vörnum? Hvað er netöryggi gagnvart öryggi fólks, öryggi neta og öryggi gagnasafna sem innihalda persónuupplýsingar.

Málstofustjóri er Arnaldur Axfjörð og Jón Kristinn Ragnarsson. Meðal þátttakenda verða fulltrúi ungmennaráðs SAFT, Hrafnkell V. Gíslasson, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar, Sigurður Emil Pálsson, sérfræðingur í netöryggismálum IRN, Jóhannes Ingi Kolbeinsson, framkvæmdastjóri Kortaþjónustunnar, Hörður H. Helgason, forstjóri Persónuverndar og fulltrúi frá Félag um stafrænt frelsi. Ritari málstofunnar er Anna Margrét Sigurðardóttir, kynningarfulltrúi hjá Póst og fjarskiptastofnun.

3.       Hvernig byggjum við upp „stafræna borgaravitund“?  

Í fyrri hluta málstofunnar (45 mín) verður fjallað um nýjar tegundir læsis og dæmi tekin um þróun erlendis í stefnu og aðgerðum skóla og menntayfirvalda sem tengjast uppbyggingu og eflingu stafrænnar borgaravitundar með nemendum (Sólveig Jakobsdóttir). Þá fjallar Elínborg Siggeirsdóttir um netöryggisfundi með nemendum og foreldrum í Hörðuvallaskóla þar sem kynntar eru hugmyndir um ábyrga netborgara, örugga netnotkun og leiðir til að efla jákvæða sjálfsvitund nemenda á netinu. Að lokum ræðir Salvör Gissurardóttir um miðlun með og á myndefni og mikilvæg atriði sem kennarar og nemendur þurfa að hafa í huga á sviði myndmiðla sem eru tengdir neti í gegnum síma (t.d. snapchat, vine, Instagram) og fjallar um hlutverk stjórnvalda í þessu efni. Tekið verður stutt hlé en í síðari hluta málstofunnar (60-70 mín) verða umræður með fiskabúrssniði um málefni sem þörf er á að ræða í þessu samhengi, t.d. nýleg vandamál sem upp hafa komið og tengjast netnotkun skólafólks. Einnig mætti ræða tengd hugtök og þýðingu þeirra á íslensku.

Umsjón með málstofu hafa Sólveig Jakobsdóttir dósent og Salvör Gissurardóttir lektor við Háskóla Íslands ásamt Elínborgu Siggeirsdóttur, umsjónarmanni upplýsingavers Hörðuvallaskóla og formanni 3f. Í umræðuhópi í upphafi verða framsögumenn, fulltrúi ungmennaráðs og Almar M. Halldórsson, verkefnisstjóri PISA hjá Námsmatsstofnun. En síðan geta allir sem áhuga hafa tekið þátt í umræðunum.

16.00 – 16.30 Veitingar

Streymi fyrir dagskrá 12.00-14.00 er hér.

Streymi fyrir málstofur á heimasíðu SAFT

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum