Hoppa yfir valmynd
7. febrúar 2014 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Tilnefning víkingaminja á heimsminjaskrá UNESCO


Fimm ríki tilnefna Ragnheiður H. Þórarinsdóttir, Kishore Rao og Claus van Carnap Bornheim þjóðminjavörður Slésvíkur-Holtsetalandí sameiningu minjastaði frá víkingaöld í Norður-Evrópu                                                                                                      


Ragnheiður H. Þórarinsdóttir, Kishore Rao og Claus van Carnap Bornheim þjóðminjavörður Slésvíkur-HoltsetalandFimm ríki, Danmörk, Ísland, Lettland, Noregur og Þýskaland, tilnefna í sameiningu margvíslegar minjar frá tímabili víkinga til heimsminjaskrár UNESCO. Framkvæmdastjóri heimsminjaskrár UNESCO, Kishore Rao, tók við tilnefningarskjölunum við athöfn í höfuðstöðvum UNESCO í París 28. janúar sl.

Undirbúningur að tilnefningunni hefur staðið í tæp sex  ár undir forystu mennta- og menningarmálaráðuneytisins í samstarfi við yfirvöld í hinum ríkjunum.

Sjö staðir eru tilnefndir og þeir eiga sameiginlegt að þar eru nokkrar mikilvægustu minjarnar um víkingana í fræðilegu tilliti sem taldir eru hafa mikla þýðingu á heimsvísu auk þess að skipta máli í sögu þjóðanna á 8. til 11. öld. Staðirnir eru:

  • Þingvellir á Íslandi,
  • Jelling og Trelleborg í Danmörku,
  • Grafreitir og búsetuminjar í Grobina í Lettlandi
  • Skipshaugar í Vestfold og kvarnarsteinsnámur  í Hyllestad  í Noregi
  • Heiðarbær og Danavirki í Slésvík-Holtsetalandi í Þýskalandi.

 

Raðtilnefningar víkingaminja

Ísland hefur verið í forystu fyrir alþjóðlegri raðtilnefningu á minjum frá víkingatímanum í samræmi við ákvörðun ríkisstjórnarinnar frá 10. ágúst 2007. Tilnefndir eru staðir á heimsminjaskrá UNESCO sem tengjast menningu víkinga í samstarfi við Danmörku, Lettland, Noreg og Slésvík-Holtsetaland. Í þessari raðtilnefningu eru staðir sem þegar eru fyrir á skránni, s.s. Þingvellir og grafhaugarnir og kirkjan í Jelling í Danmörku auk nýrra staða sem þjóðirnar leggja til, alls sjö staðir.

Hvert þátttökuríki undirbýr sinn þátt í raðtilnefningunni og á Íslandi hefur verið haft samstarf við starfsmenn Þingvallaþjóðgarðs og Þingvallanefnd.

Þetta er flókið og mikilvægt verkefni sem nýtur athygli á alþjóðavísu enda er hér um nýja nálgun við heimsminjasamninginn að ræða. Minjastofnun Íslands hélt utan um alþjóðlega hluta verkefnisins. Verkefninu er stjórnað af alþjóðlegri verkefnisstjórn sem skipuð er fulltrúum þátttökuríkjanna. Formaður verkefnisstjórnarinnar er Ragnheiður H. Þórarinsdóttir deildarstjóri í mennta- og menningarmálaráðuneyti.

Tilnefningaskjalið var afhent heimsminjaskrifstofu UNESCO í París  og eftir það tekur við langt matsferli. Umsóknin verður væntanlega tekin til umfjöllunar í heimsminjanefnd UNESCO sumarið 2015.

Á myndinni eru:  Ragnheiður H. Þórarinsdóttir, Kishore Rao og Claus van Carnap Bornheim þjóðminjavörður Slésvíkur-Holtsetalands

Tilnefningarskjalið: Viking_Age_Sites_LowR 

Fylgirit: Vikingastaðir tilnefning

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum