Hoppa yfir valmynd
10. febrúar 2014 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Lífshlaupið sett

Magnús Ragnarsson og Lars Jóhann Imsland í dekkjaþraut. Myndina tók Arnaldur Halldórsso

Lífshlaupið var sett formlega í sjöunda skiptið í síðustu viku í Hraunvallaskóla í Hafnarfirði.

Magnús Ragnarsson og Lars Jóhann Imsland í dekkjaþraut. Myndina tók Arnaldur HalldórssoLífshlaupið var sett formlega í sjöunda skiptið í síðustu viku í Hraunvallaskóla í Hafnarfirði. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur að verkefninu. Hafsteinn Pálsson, formaður almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, Geir Gunnlaugsson, landlæknir, Lars Jóhann Imsland Hilmarsson, skólastjóri Hraunvallaskóla, Magnús Ragnarsson, aðstoðarmaður mennta- og menningarmálaráðherra, Áslaug Einarsdóttir frá velferðarráðuneytinu og Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar fluttu stutt ávörp og tóku þátt í léttri og skemmtilegri þraut, ásamt nemendum úr Hraunvallaskóla, sem Andrés Guðmundsson hjá Skólahreysti stjórnaði.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum