Úthlutun af óskiptum liðum menningarmála 2014
Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur úthlutað styrkjum til verkefna er stuðla að faglegri uppbyggingu á sviði menningarmála
Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur úthlutað styrkjum til verkefna er stuðla að faglegri uppbyggingu á sviði menningarmála. Úthlutunin er í samræmi við breytt fyrirkomulag úthlutunar styrkja til félaga, samtaka og lögaðila en Alþingi hefur hætt úthlutun á styrkjum til ýmissa verkefna eins og verið hefur. Alþingi ákvarðar áfram umfang fjárframlaga en úthlutun er í höndum mismunandi ráðuneyta eftir málefnasviðum þeirra.
Í úthlutun ráðuneytisins var áhersla lögð á verkefni á sviði listgreina, menningararfs og uppbyggingar landsmótsstaða. Mennta- og menningarmálaráðuneyti tók til meðferðar 103 umsóknir þar sem sótt var um styrki alls að fjárhæð 351.789.650 kr. Alls eru veittir 20 styrkir að þessu sinni.
Eftirfarandi umsækjendur og verkefni hlutu styrki fyrir árið 2014:
-
ASSITEJ, Samtök um barna- Alþjóðleg sviðlistahátíð ASSITEJ 300.000
og unglingaleikhús á Íslandi fyrir unga áhorfendur
- Bandalag íslenskra skáta Aðstöðuuppbygging landsmótssvæðis 7.000.000
á Úlfljótsvatni - mannvirkja-, vega- og stígagerð
- Bandalag Sjálfstæðra leikhúsa Rekstur skrifstofu SL 3.300.000
- Guðmundur Magnússon Skráning handrita Jóhanns Jónssonar skálds frá 300.000
Ólafsvík (1896-1932)
- Íslandsdeild ICOM Rekstur árið 2014 600.000
- Landssamband hestamannafélaga Landsmót hestamanna á Hellu 2014 7.500.000
- Leiklistarsamband Íslands Kynning á sviðslistum innanlands og erlendis 2.000.000
- Listfræðafélag Íslands NORDIK 2015 - undirbúningur ráðstefnu 300.000
- Mýrin, félag um Mýrin - Alþjóðleg barnabókmenntahátíð í Reykjavík 300.000
barnabókmenntahátíð
- Rekstrarfélag Sarps Rekstrarfélag Sarps 2.000.000
- Reykjavík Dance Festival Reykjavík Dance Festival 2014 2.000.000
- Samtök um Danshús Dansverkstæðið 1.500.000
- Skógarmenn KFUM Tjaldstæði í Vatnaskógi 2.800.000
- Stofnun Árna Magnússonar í Sögulegt manntal og bæjatal í opnu kerfi 800.000
íslenskum fræðum
- Sveitarfélagið Skagafjörður Unglingalandsmót UMFÍ 2014 á Sauðárkróki 7.000.000
- Sögufélag Rekstur Sögufélags 3.000.000
- Tónlist fyrir alla Skólatónleikar á Íslandi 5.000.000
- Unima á Íslandi Undirbúningur samstarfs Norðurlanda á sviði 300.000
brúðuleikara og námi því tengt.
- Upplýsing, félag bókasafns – og Faglegir fundir og fræðsla 600.000
upplýsingafræða
- Upptakturinn c/o Harpa tónlistar- Upptakturinn - Tónsköpunarverðlaun barna 300.000
og ráðstefnuhús ohf. og ungmenna.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti
Reykjavík, 10. febrúar 2014