Hoppa yfir valmynd
7. mars 2014 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Lára Stefánsdóttir lætur af störfum hjá Íslenska dansflokknum 

Í dag var undirritað samkomulag milli Láru Stefánsdóttur og 

mennta- og menningarmálaráðuneytis um starfslok hennar sem listdansstjóra Íslenska dansflokksins.

Í dag var undirritað samkomulag milli Láru Stefánsdóttur og mennta- og menningarmálaráðuneytis um starfslok hennar sem listdansstjóra Íslenska dansflokksins. Starfsemi dansflokksins verður óbreytt að sinni og fyrirliggjandi verkefnaáætlun fylgt fram á vor. Framkvæmdastjóri dansflokksins tekur við yfirumsjón með daglegum rekstri hans þar til annað hefur verið ákveðið. Ákvörðun um stjórnun Íslenska dansflokksins verður tekin að höfðu samráði við stjórn hans. Ráðuneytið þakkar Láru vel unnin störf og óskar henni góðs gengis í nýjum verkefnum. 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum