Hoppa yfir valmynd
21. mars 2014 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Undirritun samnings við Bandalag íslenskra skáta

Illugi Gunnarsson mennta-og menningarmálaráðherra  og Bragi Björnsson skátahöfðingi undirrituðu samninginn

Samningur undirritaður við Bandalag skáta
Samningur undirritaður við Bandalag skáta

Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra  og Bragi Björnsson skátahöfðingi f.h. Bandalag íslenskra skáta, undirrituðu samning um ráðstöfun á framlagi á fjárlögum til reksturs Bandalagsins.

Í samningnum segir að markmiðið með stuðningi við Skátana sé að stuðla að því að þeir geti unnið að fjölþættum markmiðum sínum í þágu barna og ungmenna. Stuðningurinn tekur mið af uppeldislegu gildi starfsins og gildi starfsins í forvörnum.

Markmið skátahreyfingarinnar er að þroska börn og ungt fólk til að verða sjálfstæðir, virkir, hjálpsamir og ábyrgir einstaklingar í samfélaginu. Til þess að ná þeim markmiðum vinna skátar m.a. að margvíslegum verkefnum með börnum og ungmennum. Skátarnir veita aðildarfélögum sínum aðstoð, standa fyrir fræðslu til iðkenda og leiðtoga í skátastarfi auk þess að halda utan um fjölda virkra félaga í skátastarfi á Íslandi.

Skátafélögin hafi aðgerðaráætlun ef upp koma mál er tengjast kynferðislegu ofbeldi eða einelti. Í samningnum vekur ráðuneytið vekur athygli á mikilvægi þess að skátafélögin vinni gegn hatursorðræðu á netinu eða í starfinu.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum