Hoppa yfir valmynd
8. apríl 2014 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Lifað í lýðræði

Námsgagnastofnun hefur að frumkvæði mennta- og menningarmálaráðuneytisins gefið út leiðbeininga- og verkefnabækling Evrópuráðsins um  lýðræðismenntun 

Lifað í lýðræði Námsgagnastofnun
Lifað í lýðræði

Námsgagnastofnun hefur nýlega, að frumkvæði mennta- og menningarmálaráðuneytisins, þýtt og gefið út rafrænt leiðbeininga- og verkefnabækling Evrópuráðsins um  lýðræðismenntun. Í ritinu, sem heitir „Lifað í lýðræði - MLB/MRM kennsluáætlanir fyrir efri bekki grunnskóla“, eru níu kaflar þar sem fjallað er um: Menntun til lýðræðislegrar borgaravitundar (skst. MLB) og mannréttindamenntun (skst. MRM). 

Á vefsíðu Námsgagnastofnunar segir um ritið: „Kaflarnir eru ætlaðir nemendum í efri bekkjum grunnskóla og tekur hver þeirra til fjögurra kennslustunda. Hver kafli fjallar um lykilhugtak á sviði MLB eða MRM: sjálfsmynd– frelsi – ábyrgð – ágreining – samskipti – fjölhyggju – lög og reglur – jafnrétti – stjórnarfar.

Sett er fram tillaga um fyrirkomulag hverrar kennslustundar og kennsluferlinu lýst eins ítarlega og unnt er. Dreifiblöð fyrir nemendur fylgja hverjum kafla, þannig að kennarinn fær eins mikinn stuðning og unnt er í handbók af þessu tagi. Bókin er því fyrir kennara en ekki nemendur. Reynslan er sú að kennaranemum og byrjendum í kennslustarfinu finnst gott að fá nákvæmar kennsluleiðbeiningar, en kennarar með starfsreynslu kunna ef til vill einnig að finna nýjar hugmyndir og efni sem kemur þeim að gagni í bókinni. Æfingakennarar geta stuðst við þetta rit við þjálfun kennaranema í MLB eða MRM“.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum