Hoppa yfir valmynd
28. apríl 2014 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Norrænn stuðningur við alþjóðlega yfirlýsingu  um skjalasöfn

Þjóðskjalaverðir frá öllum Norðurlöndunum hittu norrænu menningarmálaráðherrana á fundi í Reykjavík

Norrænir ráðherrar með þjóðskjalavörðum
Norraenn-raherrafundur-Kultur-april-020

Á fundi norrænu menningarmálaráðherranna, sem haldinn var í Hörpu 28. apríl 2014, undirrituðu þeir yfirlýsingu um stuðning við alþjóðlega yfirlýsingu um skjalasöfn, sem samþykkt var á ársfundi Alþjóðaskjalaráðsins í Osló árið 2010 og sem aðalráðstefna UNESCO samþykkti síðan árið 2011. Í yfirlýsingunni segir m.a. að norrænu menningarmálaráðherrarnir séu sammála um að skjalasöfnin á Norðurlöndum gegni veigamiklu hlutverki í norrænum samfélögum og varðveiti menningararf þjóðanna. Þau varðveiti fortíð eða minni samfélaga og einstaklinga, réttindi þeirra og sögu. Ekkert kemur í stað skjalasafnanna og þau eru mikilvægur þáttur í grundvelli lýðræðis í norrænu ríkjunum.

Í upphafi yfirlýsingar Alþjóðaskjalaráðsins segir: „Skjalasöfn varðveita ákvarðanir, aðgerðir og minningar. Skjalasöfn eru einstakur og óbætanlegur menningararfur sem hver kynslóð skilar annarri. Frá upphafi miðar starfsemi skjalasafna að því að varðveita gildi þeirra og merkingu. Þau eru traust uppspretta upplýsinga sem styrkir grundvöll ábyrgra og gagnsærra stjórnvaldsaðgerða. Þau gegna lykilhlutverki í þróun þjóðfélaga með því að vernda og viðhalda minni / þekkingu einstaklinga og samfélaga. Opinn aðgangur að skjalasöfnum auðgar þekkingu okkar á mannlegu samfélagi, eflir lýðræði, verndar réttindi borgaranna og eykur lífsgæði“.

Á myndinni eru ráðherrar menningarmála á Norðurlöndunum eða fulltrúar þeirra ásamt þjóðskjalavörðunum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum