Hoppa yfir valmynd
7. maí 2014 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Aðgangsviðmið háskóla

Aðgangsviðmið eru leiðarljós við skipulagningu náms og nýtast t.d. nemendum við undirbúning undir háskólanám í einstökum háskóladeildum

adgangsvidmid

Aðgangsviðmið háskóla eru leiðarljós um hæfni nemenda sem hefja nám á grunnstigi (fyrsta háskólaþrepi) í einstökum háskóladeildum. Í samningum ráðuneytisins við íslenska háskóla er kveðið á um að þeir muni í síðasta lagi skólaárið 2014/2015 birta aðgangsviðmið allra námsleiða sinna.

Aðgangsviðmiðin skulu:

  • vísa í þrepaskipt hæfniviðmið skv. aðalnámskrá framhaldsskóla,
  • tiltaka þá hæfni sem gagnleg er fyrir nemanda þegar hann hefur nám á háskólastigi,
  • styðja við kröfur sem gerðar eru á inntökuprófum þar sem þau eru notuð,
  • vera skýr og auðskiljanleg fyrir framhaldsskólanemendur,
  • vera aðgengileg á heimasíðum háskóla.

Aðgangsviðmiðum er ætlað að vera leiðarljós við skipulagningu náms og eiga að:

  •  nýtast sem skýr skilaboð til nemenda um hvernig þeir undirbúi sig best undir háskólanám,
  • nýtast framhaldsskólum við skipulag stúdentsprófs,
  • vera leiðbeinandi við styttingu náms til stúdentsprófs,
  • draga úr skilum milli skólastiga.

Með þessu móti stuðla aðgangsviðmið að markvissu námsvali til undirbúnings fyrir tiltekið háskólanám. Háskólarnir gera skýran greinarmun á aðgangskröfum/inntökuskilyrðum í einstaka námsbrautir og aðgangsviðmiðunum, sem eru einkum leiðbeinandi viðmið. Einnig er áhersla lögð á að aðgangsviðmið séu í takt við kröfur sem fram koma í inntökuprófum eða vinnumöppum, þar sem það á við. Viðmiðin eru undirrituð af fulltrúum deilda og rektor viðkomandi skóla.


Kynning á aðgangsviðmiðum (power point)

Aðgangsviðmiðin eru birt á heimasíðum háskólanna:

Háskóli Ísland - aðgangsviðmið deilda eftir fræðasviðum

Listaháskóli Íslands - aðgangsviðmið

Landbúnaðarháskóli Íslands Hvanneyri - grunnnám

Háskólinn á Bifröst

Háskólinn á Hólum

Háskólinn á Akureyri

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum