Menningarsjóður Íslands og Finnlands
Úthlutun framlaga og styrkja fyrir seinni hluta ársins 2014 og fyrri hluta ársins 2015
Stjórn menningarsjóðs Íslands og Finnlands kom saman 16. maí 2014 í Esbo í Finnlandi og tók ákvörðun um úthlutun styrkja og framlaga fyrir seinni helming ársins 2014 og fyrri hluta ársins 2015.
Alls bárust 119 umsóknir frá Íslandi og Finnlandi. Stjórnin ákvað að úthluta framlögum og styrkjum fyrir samtals 13.050 evrur. Í stjórn sjóðsins sitja Ann Sandelin fil.mag. (formaður), Petri Sakari hljómsveitarstjóri, Eiríkur Þorláksson sérfræðingur og Greipur Gíslason verkefnastjóri. Starfsmaður sjóðsins er Gunvor Kronman forstöðumaður Hanaholmen.
Styrkir:
Bókmenntir og fjölmiðlar:
Annikin Tähti ry, Tammerfors 500 Evrur
Ferðastyrkur til að bjóða íslenska ljóðskáldinu Gerði Kristnýju til ljóðahátíðarinnar „Annikin Tunofestivaali“ í Tammerfors.
Niemi Juuli, rithöfundur, Helsinki 500 Evrur
Ferðastyrkur til að koma fram á ljóðahátíðinni „Sumarhátíð Meðgönguljóða“ í Reykjavík.
Västnyländska Kultursamfundet/Vinnuhópurinn Barna- og ungmennabókahátíðin (bokKalas), Raseborg 1000 Evrur
Ferðastyrkur til að bjóða tveim íslenskum rithöfundum á bókamenntahátíðina „Barnens och de Ungas bokKalas 2014“.
Tónlist:
Vinnuhópurinn Kerman-Lehtonen, Helsinki 1000 Evrur
Ferðastyrkur til að heimsækja tónlistarhátíðirnar „Iceland Airwaves“ og „Keflavik Music Festival“ í þeim tilgangi að safna efni í útvarpsþætti.
Hafnarborg – Menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar, Hafnarfirði 500 Evrur
Ferðastyrkur til Íslands fyrir sellóleikarann Markus Hohti til að vinna með íslenskum tónskáldum og hljóðfæraleikurum ásamt því að koma fram á finnsk-íslenskum tónleikum nútímatónlistar í Hafnarfirði.
Henell Tero-Pekka, umboðsmaður, Helsinki 1000 Evrur
Til að panta tónvek af íslenska tónskáldinu Áskeli Mássyni fyrir 20 ára afmælishátíð „Total Cello Ensembles“ .
Sveitarfjélagð Jakobstad/Sinfóníuhljómsveit Jakobstad, Jakobsstad 1000 Evrur
Til að bjóða tónskáldinu Daníel Bjarnasyni til kammertónlistarhátíðarinnar „RUSK“ í Jakobstad.
Säveltäjät ja Sanoittajat Elvis ry, Helsinki 500 Evrur
Ferðastyrkur til að bjóða Pétri Ben að halda fyrirlestur við norrænu kvikmyndadagana sem haldnir verða í Hanaholmen í Esbo.
Taiteilijayhdistys Hiljaisuus ry, Rovaniemi 500 Evrur
Ferðastyrkur til að bjóða píanóleikaranum Tinnu Þorsteinsdóttur á listahátíðina „Hiljaisuus“ í Kittilä.
Sviðslistir, kvikmyndir:
Espoon Elokuvajuhlat ry, Esbo 1000 Evrur
Til að sýna íslenskar kvikmyndir á kvikmyndahátíðinni „Espoo Ciné“ ásamt því að bjóða íslenskum kvikmyndaleikstjórum á hátíðina.
Helsinki International Film Festival – Rakkautta & Anarkiaa ry, Helsinki 1000 Evrur
Til að sýna íslenskar kvikmyndir og bjóða íslenskum kvikmyndaframleiðendum á viðburðina „Rakkautta & Anarkiaa“ og „Finnish Film Affair“ í Helsinki.
Sodankylän elokuvafestivaali ry, Helsinki 800 Evrur
Til að sýna íslenskar kvikmyndir og kynna íslenska kvikmyndaleikstjóra.
Työryhmä PIMU – perheteatteri, Borgå 750 Evrur
Til að setja upp setja upp smábarnaleikritið „Puhu tuuli purteheni“ í Edinborgarhúsinu á Ísafirði.
Myndlist:
Vinnuhópur Norræna hússins, Tusby 1000 Evrur
Ferðastyrkur fyrir fjóra finnska listamenn til Reykjavíkur til að setja upp keramiksýningu í Norræna húsinu ásamt íslenskum listamönnum.
Birgirson-Hannula, Åbo 1000 Evrur
Til að setja upp sýningu í Listasafni ASÍ í Reykjavík og Galleri Helsinki Contemporary í Helsinki.
Suomen sarjakuvaseura ry, Helsinki 1000 Evrur
Til að skipuleggja myndaseríu vinnustofu fyrir íslenska og finnska myndaseríuteiknara í Helsinki og í framhaldinu sýningar í Helsinki og Reykjavík.
Nánari upplýsingar veitir:
Skrifstofa Menningarsjóðs Íslands og Finnlands, Hanaholmen – menningarmiðstöð fyrir Svíþjóð og Finnland, Hanaholmsstranden 5, 02100 Esbo, sími +358 (0)9 435 020, e-póstur: [email protected]