Hoppa yfir valmynd
18. júní 2014 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Hvítbók um umbætur í menntun

Sett eru fram tvö meginmarkmið um umbætur í menntun á Íslandi til ársins 2018:
- 90% grunnskólanema nái lágmarksviðmiðum í lestri
- 60% nemenda ljúki námi úr framhaldsskóla á tilsettum tíma

Hvítbók um umbætur í menntun
Hvítbók um umbætur í menntun

Illugi Gunnarsson sagði frá Hvítbókinni um umbætur í menntamálum í hátíðarræðu sem hann flutti á Hrafnseyri við Arnarfjörð 17. júní.  Framtíðarsýn okkar er að ungt fólk á Íslandi hafi sömu möguleika til þess að lifa og starfa í síbreytilegum heimi og jafnaldrar þess í löndum sem við viljum bera okkur saman við. Til að svo megi verða þarf að veita nemendum á Íslandi tækifæri til menntunar í menntakerfi sem stenst samanburð við það sem best gerist erlendis“.

Sett eru tvö meg­in­mark­mið fyr­ir árið 2018 til þess að ná markmiðunum:

Í fyrsta lagi að 90% grunnskólanema nái lágmarksviðmiðum í lestri, en hlutfallið er nú 79%. Til að ná þessu markmiði er meðal annars lagt til að hlutur móðurmálskennslu verði aukinn í viðmiðunarstundaskrá aðalnámskrár grunnskóla. Einnig verði mótuð viðmið um þá lestrarkunnáttu sem nemendur eiga að búa yfir á hverju stigi grunnskólans, og að lesskilningur verði mældur reglulega allt frá leikskólastigi til loka grunnskóla.

Í öðru lagi er sett það mark­mið að hlut­fall nem­enda sem ljúka námi úr fram­halds­skóla á til­sett­um tíma hækki úr 44% og upp í 60%. Þessu markmiði verði náð með því að endurskipuleggja námstíma og stytta nám til lokaprófa, draga úr brotthvarfi og breyta skipulagi starfsmenntunar. Lagt er til að nám til stúdentsprófs miðist við þriggja ára námstíma og jafnframt verði unnið að styttingu starfsnáms. Markmiðið er fjölgun nemenda í starfsnámi og koma á markvissu og skilvirku starfsnámi sem höfðar jafnt til yngri sem eldri nemenda. Einnig að efla vinnustaðanám og skapa aðstöðu fyrir alla nemendur til að ljúka sínu námi.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum