Hoppa yfir valmynd
29. júlí 2014 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Forstöðumaður Námsmatsstofnunar

Arnór Guðmundsson hefur verið skipaður forstöðumaður NámsmatsstofnunarMennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað Arnór Guðmundsson forstöðumann Námsmatsstofnunar til fimm ára.

Arnór Guðmundsson hefur gegnt starfi skrifstofustjóra menntaskrifstofu mennta- og menningarmálaráðuneytis frá árinu 2007 og öðrum störfum þar frá árinu 1994. Hann er með doktorspróf í félagsfræði. 



Reykjavík 28. júlí 2014

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum