Umbætur í menntamálum
Illugi Gunnarsson heldur opna fundi í Borgarnesi og á Akranesi 1. september.
Ágæti viðtakandi
Ég vil bjóða þér að koma til fundar við mig og ræða hvernig við getum bætt menntun barna okkar.
Mig langar til að kynna fyrir þér hvítbók mína um menntun og hvernig við getum meðal annars bætt
læsi og námsframvindu.
Mánudaginn 1. september verð ég í Landnámssetrinu í Borgarnesi kl. 17.00
og í Vitakaffi á Akranesi klukkan 20.00
Fundirnir eru öllum opnir
Kær kveðja
Illugi Gunnarsson,
mennta- og menningarmálaráðherra
Opnir fundir med mennta og menningarmálaráðherra