Hoppa yfir valmynd
5. september 2014 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Úttektir á starfsemi þriggja framhaldsskóla

Birtar hafa verið skýrslur um úttektir á starfsemi Flensborgarskóla, Menntaskólans við Sund og Verzlunarskóla Íslands

Í skýrslunum er gerð grein fyrir úttektum á starfsemi Flensborgarskóla, Menntaskólans við Sund og Verzlunarskóla Íslands á grundvelli 42. gr. laga um framhaldsskóla nr. 92/2008 og samkvæmt þriggja ára áætlun mennta- og menningarmálaráðuneytisins um úttektir á framhaldsskólastigi. Markmið úttektanna er að leggja mat á starfsemi skólanna með hliðsjón af gildandi lögum, reglugerðum og aðalnámskrá og veita almennar upplýsingar um starfsemi þeirra. Lagt var mat á stjórnun og rekstur, skólanámskrá, nám og kennslu, skólabrag og samskipti, samstarf við foreldra, sérþarfir nemenda og kannað hvort innra mat skólans mætir ákvæðum aðalnámskrár og þörfum skólans. Skólameistari Flensborgarskóla gerði formlegar athugasemdir við efni skýrslunnar um skólann.

Flensborgarskólinn í Hafnarfirði

Menntaskólinn við Sund

Verzlunarskóli Íslands

Athugasemdir Flensborgarskóla

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum