Styrkir til safna
Safnaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr safnasjóði á árinu 2015.
Hlutverk safnasjóðs er að styrkja starf þeirra safna sem falla undir safnalög nr. 141/2011. Safnaráð gerir tillögu til
mennta- og menningarmálaráðherra um úthlutun úr sjóðnum samkvæmt safnalögum og úthlutunarreglum ráðsins frá 18. september 2013. Upphæð og fjöldi veittra styrkja fer eftir fjárveitingu á fjárlögum og umsóknum.
Til þess að geta sótt um rekstrarstyrk úr safnasjóði þarf safn að vera viðurkennt safn samkv. safnalögum nr. 141/2011. Söfn sem hljóta rekstrarstyrk á fjárlögum munu ekki hljóta rekstrarstyrk úr safnasjóði sama ár, en geta sótt um verkefnastyrki.
Umsóknarfrestur er til 15. nóvember 2014. Umsóknum skal skila með því að fylla út umsóknareyðublað á vefsíðu safnaráðs: www.safnarad.is
Nánari upplýsingar á skrifstofu safnaráðs.