Hoppa yfir valmynd
24. október 2014 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Verk- og tækninám – nema hvað!

Samtök iðnaðarins senda árlega kynningarefni, kort með yfirskriftinni Verk- og tækninám – nema hvað!, til nemenda í 9. eða 10. bekk.

Verk- og tækninám Nema hvað? frá SI
Verk- og tækninám Nema hvað? frá SI

Kynningarefnið er stílað á bæði nemandann og forráðamann hans. Samtökin hafa sent upplýsingar með áþekku efni til nemenda frá árinu 2008.

 Kortið leiðir þau inn á vefsíðuna www.nemahvad.is þar sem er að finna kynningarmyndbönd þar sem ungt fólk segir frá reynslu sinni af iðnmenntun og störfum innan mismundandi iðngreina.  Einnig eru nánari upplýsingar og slóð inn á skóla sem bjóða upp á viðkomandi nám. Markmiðið er stytta leiðina eins og mögulegt er fyrir nemandann.

 Myndböndunum er ætlað að vekja áhuga á iðn,- verk- og tækninámi og hvetja ungt fólk til að íhuga þessar námsleiðir, styrkja ímynd starfa með því að sýna einstaklinga með iðnmenntun sem náð hafa árangri og ungt fólk á auðvelt með að tengja við sem fyrirmyndir.

Kynningarefnið er einnig sent til náms- og starfsráðgjafa í þeim tilgangi að nýta í samtöl eða kennslu fyrir nemendur.

Öflugt starf í þágu menntamála fer fram innan Samtaka iðnaðarins og SI standa að margs konar viðburðum og verkefnum sem hafa það að markmiði að skólakerfið mennti unga fólkið inna iðn- verk- og tæknigreina í takt við þarfir atvinnulífsins. Nánari upplýsingar veitir Katrín D. Þorsteinsdóttir hjá SI, [email protected]

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum