Hoppa yfir valmynd
11. nóvember 2014 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Dagur íslenskrar tungu 2014

Verðlaun Jónasar Hallgrímsson verða afhent laugardaginn 15. nóvember í Iðnó í sérstakri hátíðardagskrá í tilefni af degi íslenskrar tungu

Degi íslenskrar tungu, fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, verður fagnað í nítjánda sinn sunnudaginn 16. nóvember 2014. Efnt er til ýmissa viðburða undir merkjum dagsins um helgina og dagana þar um kring.

Laugardaginn 15. nóvember verður dagskrá í Iðnó, kl. 13-17. 

Fyrri hluti dagskrárinnar ermálræktarþing Íslenskrar málnefndar og MS sem ber yfirskriftina Mál og mannréttindi. Í ár er því fagnað að Íslensk málnefnd er 50 ára.

Síðari hluti dagskrárinnar er á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytis. Þá afhendir Illugi Gunnarsson Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar auk tveggja sérstakra viðurkenninga í tilefni dags íslenskrar tungu.

Allir eru velkomnir.


Mál og mannréttindi

málræktarþing Íslenskrar málnefndar og MS og hátíðardagskrá mennta- og menningarmálaráðuneytis

í tilefni af degi íslenskrar tungu haldið í

Iðnó, laugardaginn 15. nóvember 2014

Dagskrá

Kl. 13.00–16.00:          

50 ára afmælismálþing Íslenskrar málnefndar

  • Ávarp: Guðrún Kvaran, formaður Íslenskrar málnefndar
  • Anna Sigríður Þráinsdóttir: Ályktun Íslenskar málnefndar 2014
  • Upplestur: Svala Pálmarsdóttir, verðlaunahafi úr Stóru upplestrarkeppninni
  • Brynhildur G. Flóvenz: Eru mannréttindi málið? Um rétt til tungumáls
  • Hilmar Hildarson Magnúsarson: Hinsegin orðræða: Smurning eða sandur í tannhjóli gagnkynhneigða regluverksins?

  • Bryndís Snæbjörnsdóttir: Tjáning og mannréttindi
  • Tónlist: Tómas R. Einarsson og Eyþór Gunnarsson

·    Kaffihlé

  • Heiðdís Dögg Eiríksdóttir, Hjördís Anna Haraldsdóttir, Rannveig Sverrisdóttir og Valgerður Stefánsdóttir: Án táknmáls er ekkert líf
  • Sigurður Pálsson: Einsleitni eða fjölbreytni
  • Davor Purusic: Íslenska – lykill eða hindrun að íslensku samfélagi?

·    Hlé

Kl. 16.05–17.00:          

Hátíðardagskrá dags íslenskrar tungu

  • Tónlist: Tómas R. Einarsson, Eyþór Gunnarsson og Sigríður Thorlacius
  • Ávarp mennta- og menningarmálaráðherra
  • Afhending tveggja viðurkenninga í tilefni af degi íslenskrar tungu
  • Ávörp viðurkenningarhafa
  • Upplestur: Róbert Ingi Baldursson, verðlaunahafi úr Stóru upplestrarkeppninni
  • Afhending Verðlauna Jónasar Hallgrímssonar
  • Ávarp verðlaunahafa

Kynnir: Eva María Jónsdóttir

Minnt er á vefinn www.menntamalaraduneyti.is/menningarmal/dit/

og Facebook-síðu dags íslenskrar tungu þar sem eru ýmsar

upplýsingar um ýmsa viðburði undir merkjum dags íslenskrar tungu.

 


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum