Staðfestar námsbrautarlýsingar framhaldsskóla
Staðfesting felur í sér að lýsing á uppbyggingu námsbrauta, tengslum við atvinnulíf, önnur skólastig, uppbyggingu náms á hæfniþrep o.fl. sé í samræmi við aðalnámskrá framhaldsskóla
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skv. 23. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008 staðfest eftirfarandi námsbrautarlýsingar. Staðfesting felur í sér að lýsing á uppbyggingu námsbrauta, tengslum við atvinnulíf og/eða önnur skólastig, uppbyggingu náms á hæfniþrep, inntökuskilyrðum og skilyrðum um framvindu náms, grunnþáttum og lykilhæfni og námsmati sé í samræmi við aðalnámskrá framhaldsskóla. Hinar staðfestu námsbrautarlýsingar teljast þar með hluti af aðalnámskrá framhaldsskóla, sbr. auglýsing nr. 674/2011. Staðfestingin tekur ekki til einstakra áfangalýsinga.
Skólar bera ábyrgð á að áfangalýsingar námsbrauta og kennsla falli að hæfniviðmiðum brautar og þeim ramma sem aðalnámskrá setur skólastarfi.
Kvennaskólinn í Reykjavík:
Hugvísindabraut, stúdent – hæfniþrep 3 (14-4-3-6)
Náttúruvísindabraut, stúdent – hæfniþrep 3 (14-5-3-6)
Félagsvísindabraut, stúdent – hæfniþrep 3 (14-6-3-6)
Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ:
Náttúruvísindabraut, stúdent – hæfniþrep 3 (14-7-3-6)
Félags– og hugvísindabraut, stúdent – hæfniþrep 3 (14-8-3-6)
Opin stúdentsbraut, stúdent – hæfniþrep 3 (14-9-3-6)
Menntaskólinn á Egilsstöðum:
Náttúrufræðibraut, stúdent – hæfniþrep 3 (14-12-3-6)
Málabraut, stúdent – hæfniþrep 3 (14-13-3-6)
Félagsgreinabraut, stúdent – hæfniþrep 3 (14-15-3-6)