Hoppa yfir valmynd
9. janúar 2015 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir úr Sprotasjóði

Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Sprotasjóði leik-, grunn- og framhaldsskóla vegna skólaársins 2015-16. Hlutverk sjóðsins er að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi.

Í 4 gr. reglugerðar nr. 242/2009 um Sprotasjóð leik-, grunn- og framhaldsskóla segir:
Leikskólastjórar, skólastjórar eða skólameistarar fyrir hönd skóla, kennarahópa eða einstakra kennara geta sent inn umsókn. Aðrir aðilar en skólar geta sótt um þróunarverkefni í samstarfi við skóla. Í þeim tilfellum skal staðfesting á þátttöku skóla fylgja umsókn.

Áherslusvið sjóðsins verða að þessu sinni:

  • Ábyrgð á eigin námi: Styrkleikar nemenda og áhugasvið
  • Hagnýtt læsi á öllum námssviðum
  • Fjölmenningarlegt skólastarf

Við mat á umsóknum verður skoðað hvernig verkefnin falla að hlutverki Sprotasjóðs ásamt því að markmið verkefnis séu skýrt fram sett, að verkefnisstjórn sé vel skilgreind,  að raunhæfar kostnaðar-, verk- og tímaáætlanir séu lagðar fram, og að framlag samstarfsaðila sé tryggt og vel skilgreint.

  • Umsóknir sem falla utan ofannefndra áherslusviða fá sérstaka umfjöllun í ljósi áhrifa verkefna á menntun og skólastarf.
  • Fyrir skólaárið 2015 – 2016 verða til úthlutunar allt að 50 milljónum kr.
  • Vakin er sérstök athygli á að umsóknir um styrki skulu vera á rafrænu formi. Sækja þarf um aðgang að umsóknavef Sprotasjóðs, www.sprotasjodur.is.
  • Tekið verður á móti umsóknum frá 12. janúar til 28. febrúar 2014.

Nánari upplýsingar um Sprotasjóð veitir Sigrún Vésteinsdóttir hjá Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri í síma 460-8904 eða í tölvupósti á  [email protected].


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum