Hoppa yfir valmynd
23. febrúar 2015 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Ný skýrsla: Starfsþróun kennara – greining á sjóðaumhverfi

Markmið skýrslunnar er að varpa ljósi á þau tækifæri sem kennarar hafa til starfsþróunar og hve miklum fjármunum er veitt til hennar.

Skýrslan Starfsþróun kennara – greining á sjóðaumhverfi var unnin af Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri fyrir Fagráð um símenntun og starfsþróun kennara.

Markmið skýrslunnar er að varpa ljósi á þau tækifæri sem kennarar hafa til starfsþróunar og hversu miklum fjármunum er veitt til hennar. Greiningin tekur til sjóða sem standa leikskóla-, grunnskóla-, framhaldsskóla- og tónlistarkennurum til boða. Þegar talað er um kennara í skýrslunni er víðast átt við skólastjórnendur og ráðgjafa, þ.e. náms- og starfsráðgjafa og aðra ráðgjafa s.s. sérkennslu- og kennsluráðgjafa. Athuguð var aðkoma ríkis, sveitarfélaga og háskólastofnana að starfsþróun kennara. Vinnan fór fram á tímabilinu febrúar til maí 2014 og aftur í desember 2014 og byggir á þeim upplýsingum sem fengust frá viðeigandi aðilum.

Niðurstöður skýrslunnar eru ekki tæmandi en gefa góða mynd af því hvaða sjóðir styðja starfsþróun kennara í leik-, grunn-, framhalds- og tónlistarskólum, hverskonar starfsþróun er styrkt og hversu miklum fjármunum er varið í málaflokkinn. Ljóst er að sjóðaumhverfi vegna starfsþróunar kennara, skólastjórnenda og ráðgjafa innan skólakerfisins er margslungið og umtalsverðum fjárhæðum er varið til þessara mála í samfélaginu. Gagnaöflun frá einstökum sjóðum gekk misjafnlega sem veldur því að ákveðins misræmis gætir í framsetningu í skýrslunni.

Skýrslan var unnin að beiðni fagráðs um símenntun og starfsþróun kennara sem skipað er af mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Skýrslan er aðgengileg í útgáfuskrá ráðuneytisins:

http://www.menntamalaraduneyti.is/utgafuskra/

Einnig á vef RHA:  http://www.rha.is/static/files/Rannsoknir/2014/starfsthroun-kennara-greining-sjoda_13.02.15.pdf

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum