Hoppa yfir valmynd
23. febrúar 2015 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Samráð um drög að frumvarpi til laga um breytingu á höfundalögum - 2. og 3. áfangi endurskoðunar

Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur lokið við drög að frumvarpi til laga um breytingar á höfundalögum, nr. 73/1972 (2. og 3. áfangi heildarendurskoðunar - I. kafli laganna og samningskvaðaleyfi).

Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur lokið við drög að frumvarpi til laga um breytingar á höfundalögum, nr. 73/1972 (2. og 3. áfangi heildarendurskoðunar - I. kafli laganna og samningskvaðaleyfi). Frumvarpið er samið í samráði við höfundaréttarnefnd sem er mennta- og menningarmálaráðherra til ráðuneytis um höfundaréttarmál skv. 58. gr. höfundalaga nr. 73/1972. Frumvarpið er afrakstur 2. og 3.  áfanga heildarendurskoðunar höfundalaga, sem hófst 29. október 2009. Fyrsta áfanga lauk með undirbúningi frumvarps sem varð að lögum nr. 93/2010.

Frumvarpsdrögin fara nú í opið samráðsferli með birtingu á vef ráðuneytisins þar sem öllum gefst kostur að kynna sér efni þeirra og beina athugasemdum sínum og ábendingum til ráðuneytisins. Að því loknu verður farið yfir allar athugasemdir og þær hafðar til hliðsjónar við undirbúning endanlegs frumvarps, sem fyrirhugað er að ráðherra leggi fyrir Alþingi á 144. löggjafarþingi.

Veittur er frestur til að gera athugasemdir við drögin til og með 5. mars 2015. Óskað er eftir að athugasemdir verði settar skilmerkilega fram og með vísan til tiltekinna greina frumvarpsins, þegar það á við. Athugasemdir sendist í tölvupósti á [email protected] með efnislínunni: „Frumvarp til breytinga á höfundalögum – 2. og 3. áfangi“.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum