Hoppa yfir valmynd
21. apríl 2015 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Fjölmenn ráðstefna um nýjungar í skólastarfi

Illugi Gunnarsson ávarpaði alþjóðlega ráðstefnu um vendinám í skólastarfi, sem Keilir ásamt íslenskum og evrópskum samstarfsaðilum, stóðu fyrir

Vendinám í Keili

Keilir, ásamt íslenskum og evrópskum samstarfsaðilum, stóðu fyrir alþjóðlegri ráðstefnu um vendinám í skólastarfi 14. apríl síðastliðinn. Hátt í 400 kennarar og skólastjórnendur af öllu landinu sóttu ráðstefnuna og fengu innsýn í hvernig hægt er að nýta vendinám og tækninýjungar við kennslu og þróun nýrra kennsluhátta. 

Vendinám gengur út á að snúa hefðbundinni kennslu snúið við. Fyrirlestrar og kynningar kennara eru vistuð á netinu og geta nemendur horft á þær eins oft og þeim sýnist og hvar sem þeim sýnist. Nemendur vinna aftur á móti heimavinnuna í skólanum, oft í verkefnum, undir leiðsögn kennara. Kennslustundir í skólanum verða fyrir vikið frábrugðnar hefðbundinni kennslu. Þar sem þetta form hefur verið reynt virðist lærdómurinn verða lifandi ferli sem virkjar nemendur á skemmtilegan hátt. Nám er alltaf á ábyrgð nemenda og undirbúningur fyrir verkefnatímana í skólanum er nauðsynlegur til þess að vinnan í skólanum nýtist á virkan hátt.

Aðal fyrirlesarar ráðstefnunnar voru Jonathan Bergmann og Aaron Sams, forsprakkar vendinámsins og höfundar bókarinnar „Flip Your Classroom: Reach Every Student in Every Class Every Day“. Fyrirlestri þeirra var síðan fylgt eftir með hátt í tuttugu mismunandi vinnustofum þar sem kennarar víðsvegar af landinu kynntu tæki, tækni og kennsluhætti sem nýtast þeim í skipulagningu og framkvæmd vendináms. Í framhaldin af ráðstefnunni stóðu Jonathan og Aaron fyrir vinnubúðum fyrir um 60 skólastjórnendur og kennara um hvernig hægt er að innleiða vendinám í skólastarfi.

 Þróun handbóka fyrir skóla sem vilja innleiða vendinám

Haustið 2014 hlaut Keilir, ásamt samstarfsaðilum á Íslandi og í Evrópu, rúmlega þrjátíu milljóna króna styrk úr Erasmus+ áætlun Evrópusambandsins til þróunar á handbókum um innleiðingu vendináms í skólum þar sem upplýsingatækni er notuð til að auðga námsumhverfi nemenda. Verkefnið er til tveggja ára og nefnist „FLIP - Flipped Learning in Praxis“.

Einkum verður leitast við að afmarka og gera grein fyrir þeim þáttum í innleiðingarferli sem stuðla að árangursríkri notkun upplýsingatækni, einstaklingsmiðuðu námsumhverfi, og verkefnamiðuðu námi. Meðal afurða verkefnisins eru handbækur fyrir kennara sem vilja innleiða vendinám, verða ráðstefnur og vinnubúðir fyrir kennara í samstarfslöndunum, samantekt á fyrirmyndarverkefnum og bestu starfsvenjum í vendinámi, uppsetning á opnum gagnagrunni þar sem aðilar geta deilt efni sem tengist innleiðingu og utanumhaldi vendináms.

 Háskólabrú Keilis er leiðandi aðili í vendinámi á Íslandi

Á Háskólabrú Keilis er lögð megin áhersla á vendinám og hefur skólinn undanfarin ár markað sér sérstöðu í að veita einstaklingsmiðaða þjónustu og stuðning við nemendur. Kennsluhættir miða við þarfir fullorðinna nemenda, miklar kröfur eru gerðar um sjálfstæði í vinnubrögðum og eru raunhæf verkefni lögð fyrir. Yfir 1.200 nemendur hafa útskrifast úr Háskólabrú Keilis frá upphafi og hafa langflestir þeirra haldið áfram í háskólanám að því loknu. Keilir býður upp á aðfararnám í samstarfi við Háskóla Íslands.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum