Hoppa yfir valmynd
22. apríl 2015 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Viðurkenningar á söfnum

Umsóknir um viðurkenningar á söfnum þurfa að berast Safnaráði í síðasta lagi 31. ágúst nk.

Safnaráð minnir á að síðasti skiladagur umsókna um viðurkenningu samkvæmt safnalögum, til að umsóknin verði afgreidd áður en umsóknarfrestur í safnasjóð fyrir árið 2016 rennur út, er 31. ágúst 2015. Umsóknir sem berast eftir þann tíma verða ekki afgreiddar fyrr en að lokinni úthlutun úr safnasjóði 2016.

Aðeins viðurkennd söfn önnur en söfn í eigu ríkisins geta sótt um rekstrarstyrki til sjóðsins. Öll viðurkennd söfn geta sótt um styrki til skilgreindra verkefna.

Með safnalögum nr. 141/2011 fékk safnaráð það hlutverk að fjalla um viðurkenningu safna og afturköllun viðurkenningar áður en tillögur þar að lútandi eru sendar ráðherra.  Viðurkenning safnaráðs er forsenda þess að söfn geti sótt um rekstrarstyrk úr safnasjóði og eingöngu viðurkennd söfn geta orðið ábyrgðarsöfn

Frekari upplýsingar um viðurkenningu safna eru hjá Safnaráði 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum